Íbúaráð Grafarholts og Úlfarsárdals
Ár 2024, miðvikudagurinn, 16. október, var haldinn 47. fundur íbúaráðs Grafarholts og Úlfarsárdals. Fundurinn var haldinn í bókasafninu í Úlfarsárdal og hófst kl. 16.36. Eftirtaldir fulltrúar voru viðstaddir: Guðný Maja Riba, Ellen Ellertsdóttir, Marta Guðjónsdóttir og Stefán Pálsson. Eftirtaldir fulltrúar í íbúaráði Grafarholts og Úlfarsárdals tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Þórir Jóhannsson. Fundinn sátu einnig Trausti Jónsson og Heimir Snær Guðmundsson sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram drög að svohljóðandi tillögu íbúaráðs Grafarholts og Úlfarsárdals, dags. 9. október 2024, um lóða- og framkvæmdaskilmála og umgengni á byggingarlóðum:
Lagt er til að íbúaráð Grafarholts og Úlfarsárdals samþykki að beina því til umhverfis- og skipulagsráðs að grípa til viðeigandi ráðstafana svo að almennir lóða- og framkvæmdaskilmálar vegna uppbyggingar í borgarhlutanum verði virtir. Einnig óskar íbúaráðið eftir að efnt verði til átaks vegna daprar umgengni á og við byggingarlóðir í ÚIfarsárdal. Í mörgum tilfellum eru byggingarlóðir og nágrenni þeirra notað sem geymslusvæði svo mánuðum skiptir með tilheyrandi sóðaskap og slysahættu. MSS24100058
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.Íbúaráð Grafarholts og Úlfarsárdals leggur fram svohljóðandi bókun:
Íbúaráð Grafarholts og Úlfarsárdals hefur margoft á liðnum misserum fjallað um slæmt ástand á byggingarlóðum í Úlfarsárdal sem rýrir lífgæði íbúa og skapar hættu. Ráðið hefur samþykkt að beina því til umhverfis- og skipulagsráðs að gera bragarbót og mun máli sínu til stuðnings senda myndir sem draga glögglega fram stöðu mála og umfang vandans.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf Skipulagsgáttar, dags. 19. september 2024, með umsagnarbeiðni Reykjavíkurborgar um Aðalskipulag Reykjavíkur 2040 – Keldur og nágrenni, verklýsing skipulagsgerðar og umhverfismat. USK24080321
Samþykkt að fela formanni í samráði við ráðið að skila umsögn ráðsins fyrir tilskilinn frest.Fylgigögn
-
Lagt fram bréf Skipulagsgáttar, dags. 5. september 2024, með umsagnarbeiðni Reykjavíkurborgar um Aðalskipulag Reykjavíkur 2040 – íbúðaruppbygging í grónum hverfum, verklýsing skipulagsgerðar. USK24080161
Samþykkt að fela formanni í samráði við ráðið að skila umsögn ráðsins hið fyrsta.Fylgigögn
-
Fram fer umræða um ónægði vegna fjórhjólaferða í Úlfarsárdal. MSS23090067
-
Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 18. september 2024, um að opið er fyrir umsóknir í Hverfissjóð Reykjavíkurborgar frá 15. september til 15. október. MSS24030095
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 25. september 2024, um breytingar á úthlutunarreglum Hverfissjóðs Reykjavíkurborgar. MSS22020161
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um fasta fundartíma ráðsins.
Samþykkt að fastir fundartímar ráðsins verði þriðja fimmtudag í mánuði eftirleiðis.Fylgigögn
-
Fram fer umræða um málefni hverfisins. MSS22090034
-
Íbúaráð Grafarholts og Úlfarsárdals leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Hversu margar óbyggðar/hálfbyggðar lóðir eru í Úlfarsárdal og Reynisvatnsás sem þegar hefur verið úthlutað? MSS24100151
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs.
Fundi slitið kl. 17:28
Guðný Maja Riba Stefán Pálsson
Marta Guðjónsdóttir Ellen Ellertsdóttir
Þórir Jóhannsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð íbúaráðs Grafarholts og Úlfarsárdals 16. október 2024