Íbúaráð Grafarholts og Úlfarsárdals
Ár 2023, miðvikudagurinn, 21. febrúar, var haldinn 40. fundur íbúaráðs Grafarholts og Úlfarsárdals. Fundurinn var haldinn í bókasafninu í Úlfarsárdal og hófst kl. 16.45. Eftirtaldir fulltrúar voru viðstaddir: Guðný Maja Riba, Björn Ingi Björnsson, Heiða Björk Júlíusdóttir, Ellen Ellertsdóttir, Marta Guðjónsdóttir og Stefán Pálsson. Fundinn sátu einnig Trausti Jónsson og Heimir Snær Guðmundsson sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 5. febrúar 2024, vegna verkhönnunar verkefna í Hverfið mitt í Grafarholti og Úlfarsárdal. MSS22020075
Heiða Hrunda Jack og Guðný Bára Jónsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á starfsemi Frisbígolffélags Reykjavíkur. MSS22090034
Ólafur Haraldsson og Davíð Már Vilhjálmsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl.17.47 víkur Marta Guðjónsdóttir af fundi.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 26. janúar 2024 um samþykkt verklagsreglna um fyrirspurnir og tillögur í ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar. MSS23090170
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf verkefnastjóra stýrihóps um mótun stefnu í málefnum eldra fólks til ársins 2026, dags. 6. febrúar 2024, þar sem óskað er eftir tilnefningu tilnefningu tveggja fulltrúa á samráðsfund með framtíðarnotendum.
Samþykkt að fela formanni að leita að þátttakendum.Fylgigögn
-
Fram fer umræða um málefni hverfisins. MSS22090034
Fundi slitið kl. 18:24
Guðný Maja Riba Stefán Pálsson
Björn Ingi Björnsson Ellen Ellertsdóttir
Heiða Björk Júlíusdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð Grafarholts og Úlfarsárdals frá 21. febrúar 2024