Íbúaráð Árbæjar og Norðlingaholts - Fundur nr. 46

Íbúaráð Árbæjar og Norðlingaholts

Ár 2024, þriðjudaginn 8. október var haldinn 46. fundur íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts. Fundurinn var haldinn í Árseli og hófst kl. 16.37. Eftirtaldir fulltrúar voru viðstaddir: Þorkell Heiðarsson, Arnór Heiðarsson, Björn Gíslason, Lina Marcela Giraldo og Vera Sveinbjörnsdóttir. Fundinn sátu einnig Trausti Jónsson og Heimir Snær Guðmundsson sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer umræða um skóla- og æskulýðsmál í borgarhlutanum. MSS23090175

    Dagbjört J. Þorsteinsdóttir, Bjarni Þórðarson og Sandra Dís Káradóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið

  2. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 18. september 2024, um að opið er fyrir umsóknir í Hverfissjóð Reykjavíkurborgar frá 15. september til 15. október. MSS24030095

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 25. september 2024, um breytingar á úthlutunarreglum Hverfissjóðs Reykjavíkurborgar. MSS22020161

  4. Lagt fram bréf Skipulagsgáttar, dags. 19. september 2024, með umsagnarbeiðni Reykjavíkurborgar um Aðalskipulag Reykjavíkur 2040 – Keldur og nágrenni, verklýsing skipulagsgerðar og umhverfismat. USK24080321    
    Samþykkt að fela formanni í samráði við ráðið að skila umsögn fyrir tilskilinn frest. 

    Fylgigögn

  5. Lagt fram fundadagatal íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts – haust 2024. MSS22080127

  6. Fram fer umræða um málefni hverfisins. MSS22090034

  7. Lagt fram bréf íbúa í hverfinu, dags. 7. október 2024, um fáliðun í leikskóla í hverfinu. MSS24100057
    Samþykkt að senda skóla- frístundasviði til upplýsingar. 

    Fylgigögn

  8. Lögð fram greinargerð Sigmar Þórs Matthíassonar, dags. 24. september 2024 vegna verkefnisins Lifandi tónlist í Elliðaárstöð og á Bístró. MSS23030157

Fundi slitið kl. 18:10

Þorkell Heiðarsson Arnór Heiðarsson

Björn Gíslason Vera Sveinbjörnsdóttir

Lina Marcela Giraldo

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts 8. október 2024