Íbúaráð Árbæjar og Norðlingaholts - Fundur nr. 37

Íbúaráð Árbæjar og Norðlingaholts

Ár 2023, þriðjudaginn 14. nóvember var haldinn 37. fundur íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts. Fundurinn var haldinn í félagsmiðstöðinni Holtinu og hófst kl. 16.35. Eftirtaldir fulltrúar voru viðstaddir: Þorkell Heiðarsson, Björn Gíslason, Lina Marcela Giraldo og Vera Sveinbjörnsdóttir. Fundinn sátu einnig Trausti Jónsson og Heimir Snær Guðmundsson sem ritaði fundargerð.  
 

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á starfsemi Austurmiðstöðvar. MSS22100035

    Ingibjörg Þ. Sigurþórsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

    -    16.36 tekur Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir sæti á fundinum. 
    -    16.38 tekur Elvar Örn Þórisson sæti á fundinum. 

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags.6. október 2023, vegna niðurstaðna í Hverfið mitt 2022-2023. MSS22020075

    Fylgigögn

  3. Fram fer umræða um málefni hverfisins. MSS22090034

  4. Lagðar fram til afgreiðslu umsóknir í Hverfissjóð Reykjavíkurborgar. MSS22040019

    Samþykkt að veita Sigmari Þór Matthíassyni  styrk að upphæð kr. 300.000 vegna verkefnisins Lifandi tónlist í Elliðaárstöð og Á Bístró  .

    Öðrum umsóknum hafnað. 

    Þessi liður fundarins var lokaður með vísan til 7. gr. samþykktar fyrir íbúaráð Reykjavíkurborgar. 

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 18.12

Þorkell Heiðarsson Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir

Björn Gíslason Elvar Örn Þórisson

Vera Sveinbjörnsdóttir Lina Marcela Giraldo

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts 14. nóvember 2023