Íbúaráð Árbæjar og Norðlingaholts
Ár 2023, þriðjudagurinn, 14. mars, var haldinn 34. fundur íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts. Fundurinn var haldinn í Félagsmiðstöðinni Holtinu og hófst kl. 16.33. Eftirtaldir fulltrúar voru viðstaddir: Þorkell Heiðarsson, Björn Gíslason, Elvar Örn Þórisson, Pawel Bartoszek og Vera Sveinbjörnsdóttir. Fundinn sátu einnig Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir sem ritaði fundargerð og Trausti Jónsson.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 22. febrúar 2023, um uppstillingu kjörseðils í Árbæ og Norðlingaholti fyrir Hverfið mitt ásamt fylgiskjölum. MSS22020075
Samþykkt að óska eftir að eftirtalin verkefni fari á kjörseðil fyrir hverfiskosningar í Hverfið mitt næstkomandi haust:
1. Áning sunnan Rauðavatns og aðgengilegir bekkir
2. Parkour völlurinn
3. Bæta sumarskreytingar (blóm) í Árbæ á sumrin
4. Útigrill
5. Hundasvæði
6. Körfuboltavöllur hjá aparóló i Ártúnsholti
7. Leik- og útivistarsvæði á milli Hraunbæjar og Rofabæjar
8. Úti Tæki
9. Útsýnispallur við Kermóafoss
10. Vatnspóst við ærslabelginn hjá YstabæMeð vísan til 7. gr. samþykktar um íbúaráð fer umræða undir þessum lið fram fyrir luktum dyrum.
Bragi Bergsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um málefni hverfisins. MSS22090034
Fundi slitið kl. 18:20
Þorkell Heiðarsson Pawel Bartoszek
Björn Gíslason Elvar Örn Þórisson
Vera Sveinbjörnsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts frá 14. mars 2023