Íbúaráð Árbæjar og Norðlingaholts - Fundur nr. 16

Íbúaráð Árbæjar og Norðlingaholts

Ár 2021, miðvikudagur, 28. apríl, var haldinn 16. fundur íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur – Tjarnarbúð og með fjarfundarbúnaði og hófst kl. 17:01. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 1436/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitastjórnarráðherra skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011:, Ásta Katrín Hannesdóttir, Björn Gíslason, Hrönn Vilhjálmsdóttir, Eva Alice Lucienne Leplat og Þorkell Heiðarsson. Fundinn sátu einnig Eiríkur Búi Halldórsson og Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir sem ritaði fundargerð og Trausti Jónsson sem sat fundinn með fjarfundarbúnaði.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á fyrirkomulagi uppstillingar kjörseðils fyrir Hverfið mitt og opnað fyrir rafræna uppstillingu á vefnum betrireykjavik.is.

  2. Fram fer yfirferð verkefnastjóra Hverfið mitt í Árbæ og Norðlingaholti á hugmyndum sem íbúar hafa úr að velja við rafræna uppstillingu. 

  3. Lokað fyrir rafræna uppstillingu kjörseðils fyrir Hverfið mitt og niðurstöður kynntar. 

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 19:05

PDF útgáfa fundargerðar
ibuarad_arbaejar_og_nordlingaholts_2804.pdf