Íbúaráð Árbæjar og Norðlingaholts - Fundur nr. 13

Íbúaráð Árbæjar og Norðlingaholts

Ár 2021, þriðjudagur, 9. febrúar, var haldinn 13. fundur íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 16.32. Viðstaddir voru Þorkell Heiðarsson og Ásta Katrín Hannesdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 1760/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitastjórnarráðherra skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Elvar Örn Þórisson, Hrönn Vilhjálmsdóttir og Eve Alice Lucienne Leplat. Fundinn sátu einnig Heimir Snær Guðmundsson sem ritaði fundargerð og Sólveig Ingibjörg Reynisdóttir sem sat fundinn með fjarfundarbúnaði.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 1. febrúar 2021 um framlengingu á heimild til frávika frá skilyrðum sveitarstjórnarlaga vegna neyðarástands í sveitarfélagi.

    Fylgigögn

  2. Lögð fram tilnefning íbúasamtaka í hverfinu í íbúaráð Árbæjar og Norðlingaholts. Elvar Örn Þórisson situr áfram sem aðalfulltrúi íbúasamtaka í hverfinu í íbúaráði Árbæjar og Norðlingaholts. Þá mun Ólafur Ragnarson áfram sitja sem varafulltrúi íbúasamtaka í hverfinu í íbúaráði Árbæjar og Norðlingaholts. 

    Fylgigögn

  3. Fram fer umræða um Hverfið mitt og framkvæmd verkefna 2019-2020. 

  4. Fram fer kynning frá þjónustumiðstöð á málefnum innflytjenda í Árbæ og Norðlingaholti. 

    Trausti Jónsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    -    Kl.17.04 tekur Björn Gíslason sæti á fundinum.

  5. Lögð fram umsögn íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts dags. 9. febrúar 2021 um Stefnu um framtíðarskipan tónlistarnáms í Reykjavík til 2030. 
    Samþykkt.

    Fylgigögn

  6. Lögð fram útskrift úr gerðabók skipulags- og samgönguráðs frá 18. nóvember. 

    Fylgigögn

  7. Fram fer umræða um málefni hverfisins.

  8. Lögð fram greinargerð vegna styrks úr hverfissjóði. Þessi liður fundarins er lokaður. 

    a) Íbúasamtök Árbæjar, Ártúns og Seláss/Jólatónleikar.

Fundi slitið klukkan 17:44

PDF útgáfa fundargerðar
ibuarad_arbaejar_og_nordlingaholts_0902.pdf