Íbúaráð Árbæjar og Norðlingaholts - Fundur nr. 12

Íbúaráð Árbæjar og Norðlingaholts

Ár 2021, þriðjudagur, 12. janúar, var haldinn 12. fundur íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts. Fundurinn var haldinn með fjarfundarbúnaði og hófst kl. 16.32. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 1760/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitastjórnarráðherra skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Þorkell Heiðarsson, Ásta Katrín Hannesdóttir, Björn Gíslason, Elvar Örn Þórisson, Hrönn Vilhjálmsdóttir og Eve Alice Lucienne Leplat. Fundinn sátu einnig með fjarfundarbúnaði þau Heimir Snær Guðmundsson sem ritaði fundargerð og Sólveig Ingibjörg Reynisdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á íþrótta og tómstundamálum í hverfinu.

    Ómar Einarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

  2. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs dags. 4. janúar 2021 vegna vegna tillögu að breyttu hverfisskipulagi fyrir Árbæ er varðar lóðirnar nr. 7-9 við Rofabæ.

    Fylgigögn

  3. Fram fer umræða um starf íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts 2020 og starfið framundan

  4. Fram fer umræða um íbúalýðræðisverkefnið Hverfið mitt og yfirstandandi hugmyndasöfnun sem lýkur 20. janúar.

    Fylgigögn

  5. Fram fer umræða um málefni hverfisins.

  6. Lögð fram greinargerð vegna Sumarborgar 2020 – hverfin. Þessi liður fundarins var lokaður.

    a) Söngstund íbúa í hverfinu – Borgarbókasafnið Árbæ.

Fundi slitið klukkan 17:44

PDF útgáfa fundargerðar
ibuarad_arbaejar_og_nordlingaholts_1201.pdf