Hverfisráð Kjalarness
Ár 2001, fimmtudaginn 1. mars var haldinn 45. fundur samstarfsráðs Kjalarness. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12.00. Viðstaddir voru, Jónas Vigfússon, Sigríður Pétursdóttir, Sigrún Erla Smáradóttir og Guðrún Pétursdóttir. Kristbjörg Stephensen, ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
1. Bygging Klébergsskóla. Á fundinn mættu Sigrún Magnúsdóttir, Hrannar Björn Arnarsson, Sigþór Magnússon, skólastjóri Klébergsskóla og Rúnar Gunnarsson, byggingadeild og fóru yfir stöðu mála í byggingaframkvæmdum við Klébergsskóla. Ef áætlanir ganga eftir og tilfærslur fjármuna milli framkvæmda innan þriggja ára áætlunar, er reiknað með að nýbyggingin verði að mestu tekin í notkun haustið 2002. Þá var greint frá því að væntanlega verði framkvæmdum við leikskólann flýtt, þannig að hann verði tilbúinn haustið 2002. Þá urðu töluverðar umræður um fyrirkomulag á hverfistengdum skólanefndum og hvort tilefni sé til að hafa slíkar nefndir í formi núverandi skólanefndar á Kjalarnesi, með breyttu formi eða alls ekki.
2. Akstur SVR um Mosfellsbæ og Kjalarnes. Lagt fram bréf skrifstofustjóra borgarverkfræðings, dags. 15. febrúar s.l., sbr. samþykkt samgöngunefndar frá 12. febrúar s.l. ásamt umsögn forstjóra SVR, dags. 12. febrúar s.l.
Fundi slitið kl. 13.15
Jónas Vigfússon
Sigríður Pétursdóttir
Sigrún Elsa Smáradóttir
Guðrún Pétursdóttir