Hverfisráð Kjalarness
Ár 2000, fimmtudaginn 21. september, var haldinn 38. fundur samstarfsráðs Kjalarness. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12.06. Viðstaddir voru: Jónas Vigfússon, Sigrún Elsa Smáradóttir, Sigríður Pétursdóttir og Jóna Gróa Sigurðardóttir. Fundarritari var Jónína Björgvinsdóttir.
Þetta gerðist:
1. Viðtalstími 14. ágúst. Jónas Vigfússon greindi frá fundinum. Einn kom í viðtalstímann.
a) Ræddi um vallarsvæði Hestamannafélagsins Harðar Arnarhamri. Óskað eftir styrk til verkefnisins, sbr. bréf frá 14. ágúst s.l.
Formanni falið að ræða hugsanlega framtíðaruppbyggingu vallarsvæðisins. Ákveðið að halda fund um skipulagsmál með hagsmunaaðilum á Kjalarnesi 2. október n.k., kl. 20.30. Erindinu að öðru leyti frestað til næsta fundar.
- Kl. 12.30 tók Gunnar Eydal við fundarritun.
2. Vistvernd í verki á Kjalarnesi. Formaður gerði grein fyrir stöðu mála varðandi verkefnið sem unnið er í samvinnu við Landvernd.
3. Skipulagsmál, Esjugrund. Lagt fram bréf Borgarskipulags frá 31. f.m., sbr. samþykkt skipulags- og umferðarnefndar 21. s.m. um þrengingu götunnar. Gatnamálastjóra var falið að vinna að tillögu sem síðan verði kynnt fyrir íbúum. Ákveðið var að halda opinn fund til að kynna tillöguna og önnur skipulags- og umferðaröryggismál fimmtudaginn 28. þ.m. kl. 20.30.
5. Orkuveitumál. Rætt um orkuveitumál á nyrstu bæjum á Kjalarnesi. Formanni falið að ræða við fulltrúa Orkuveitunnar um niðurgreiðslu orkuverðs og yfirtöku Orkuveitunnar frá Rarik.
6. Lagt fram bréf Péturs Friðrikssonar frá 15. þ.m., þar sem hann tilkynnir um lausn frá störfum í samstarfsráðinu vegna brottflutnings frá Kjalarnesi. Varamaður hans, Ólafur Jón Guðjónsson, mun taka sæti í ráðinu í hans stað. Pétri voru þökkuð vel unnin störf í ráðinu.
Fundi slitið kl. 13.20.
Jónas Vigfússon
Sigrún Elsa Smáradóttir
Sigríður Pétursdóttir
Jóna Gróa Sigurðardóttir