Hverfisráð Grafarvogs - Fundur nr. 127

Hverfisráð Grafarvogs

Ár 2016, þriðjudaginn 15. mars, var haldinn 127. fundur hverfisráðs Grafarvogs. Fundurinn var haldinn í Miðgarði í Grafarvogi og hófst fundurinn kl. 17:04. Viðstödd voru Bergvin Oddsson, Guðbrandur Guðmundsson, Elísabet Gísladóttir og Gísli Rafn Guðmundsson. Auk þeirra sátu fundinn Trausti Harðarson áheyrnarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina, Jóhannes Óli Garðarsson áheyrnarfulltrúi Korpúlfa, Ingibjörg Sigurþórsdóttir framkvæmdarstjóri Miðgarðs, Margrét Richter, sérfræðingur fjármála og rekstrar í Miðgarði og Þorvaldur Guðjónsson, verkefnastjóri félagsauðs og frístunda í Miðgarði, sem einnig ritaði fundargerð.   

Þetta gerðist:

1. Bréf  frá skrifstofu borgarstjóra varðandi mætingar í borgarstjórn, borgarráð, fagráð og hverfisráð, dags. 20. janúar 2016, lagt fram til upplýsinga.

2. Bréf frá skrifstofu borgarsjóra varðandi notkun fjarfundarbúnaðar á fundum ráða og nefnda, dags. 15. febrúar 2016, lagt fram til upplýsinga.

3. Svar frá borgarbókaverði dags. 25. janúar sl. varðandi tillögu um skóhillur lagt fram til kynningar og umræðu.

Kl. 17:14 tóku Herdís Anna Þorvaldsdóttir, Karítas Bjarkadóttir áheyrnarfulltrúi ungmennaráðs Grafarvogs og Stefán Garðarsson áheyrnarfulltrúi Bryggjuráðs sæti á fundinum.

4. Svar USK, dags. 3. febrúar 2016, varðandi snjóruðning í hverfinu lagt fram til kynningar og umræðu.

Eftirfarandi bókun var gerð af hverfisráði Grafarvogs:

Hverfisráð þakkar greinagóð svör. Hverfisráð hvetur jafnframt til þess að vel sé fylgst með verktökum því hverfisráðsfulltrúar hafi þá tilfinningu að snjómokstur hafi gengið verr í vetur en í fyrravetur.

5. Umræður um styrktarsjóð hverfisráðs. Umsóknarfrestur fyrir styrki verði til 10. apríl nk. Umsóknir verði teknar fyrir á fundi hverfisráðs 12. apríl nk.

Eftirfarandi fyrirspurn var lögð fram af fulltrúa Framsóknar og flugvallarvina:

Óskað er eftir upplýsingum frá Reginn eiganda Egilshallar og gervigrasvalla við Egilshöll hvort ekki verði örugglega skipt út gervigrasi á öllum gervigrasvöllum á bak við Egilshöll í sumar 2016? Á völlum við Egilshöll er svart dekkjakurl þar sem börn og unglingar hverfisins æfa knattspyrnu með hverfisíþróttafélagi sínu Fjölni. Fyrir hafa flest ef ekki öll sveitarfélög landins ákveðið að skipta út öllu gervigrasi sem inniheldur svart dekkjakurl eins og á völlum við Egilshöll. Reykjavíkurborg hefur þegar ákveðið að skipta út gervigrasi hið snarasta hjá íþróttafélaginu Víkingi og eftir það hjá KR, Fylki, Leikni og ÍR.

Eftirfarandi fyrirspurn var lögð fram af fulltrúa framsóknar og flugvallarvina:

Framsókn og flugvallarvinir óska eftir upplýsingum um hverjar heildartekjur borgarsjóðs hafa verið úr Grafarvogi, þ.e. útsvar frá íbúum Grafarvogs og fasteignagjöldum íbúa og fyrirtækja í hverfinu, póstnúmeri 112 á árinu 2014 og 2015. Einnig óska Framsókn og flugvallarvinir eftir upplýsingum/yfirliti yfir stærstu útgjaldarliði borgarsjóðs sem snúa beint að hverfinu á sömu árum.

Eftirfarandi fyrirspurn var lögð fram af fulltrúa framsóknar og flugvallarvina:

Þriðja ítrekun á fyrirspurn Framsóknar og flugvallarvina frá fundi ráðsins 28. október 2014 en fyrir var send ítrekun á fyrirspurn frá fundi Hverfisráðs Grafarvogs 28. apríl 2015 en ekki hefur enn komið svar við fyrirspurn þessari frá fjármálaskrifstofu borgarinnar.Framsókn og flugvallarvinir óska eftir upplýsingum um hverjar heildartekjur borgarsjóðs hafa verið úr Grafarvogi, þ.e. íbúum Grafarvogs, og fasteignagjöldum íbúa og fyrirtækja í hverfinu, póstnúmeri 112 á árinu 2011, 2012 og 2013. Einnig óskar framsókn og flugvallarvinir eftir upplýsingum/yfirliti yfir stærstu útgjaldaliði borgarsjóðs sem snúa beint að hverfinu á sömu árum.

Fundi slitið kl. 17:42

Bergvin Oddsson

Guðbrandur Guðmundsson Gísli Rafn Guðmundsson

Elísabet Gísladóttir