Heilbrigðisnefnd
Árið 2026, miðvikudaginn 25. nóvember kl. 15:05, var haldinn 179. fundur heilbrigðisnefndar Reykjavíkur sem jafnframt var aukafundur. Fundurinn var haldinn sem fjarfundur. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Margrét Rós Sigurjónsdóttir, Friðjón R. Friðjónsson og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Tómas G. Gíslason, Óskar Ísfeld Sigurðsson, Guðjón Ingi Eggertsson og Sigurjóna Guðnadóttir. Fundarritari var Jóhanna Kristrún Birgisdóttir.
Þetta gerðist:
-
Fram fer umræða um breytingar á heilbrigðiseftirliti þegar heilbrigðiseftirlit færist frá sveitarfélögum til ríkisins um næstu áramót. Ásamt umræðunni er lagt fram minnisblað framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 24. nóvember 2026. HER26010001
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa heilbrigðisnefndar Reykjavíkur:
Heilbrigðisnefnd þakkar fyrir framlagt minnisblað um forgangsröðun verkefna Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur frá framkvæmdastjóra, vegna flutnings verkefna heilbrigðiseftirlits til ríkisins. Nefndin tekur undir áhyggjur af þeirri stöðu sem upp er komin og þeim áhrifum sem hún kann að hafa á starfsemi og þjónustu eftirlitsins. Nefndin styður þá forgangsröðun verkefna sem lögð er til í minnisblaðinu.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 15:24
Margrét Rós Sigurjónsdóttir Friðjón R. Friðjónsson
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð aukafundar heilbrigðisnefndar Reykjavíkur 25. nóvember 2026