Heilbrigðisnefnd - Fundur nr. 176

Heilbrigðisnefnd

Árið 2026, miðvikudaginn 23. september kl. 15:02 var haldinn 176. fundur heilbrigðisnefndar Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Margrét Rós Sigurjónsdóttir, Daníel Hjörvar Guðmundsson, Lárus Blöndal Sigurðsson og fulltrúi Samtaka atvinnulífsins, Ólafur Jónsson. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Bjarnveig Birta Bjarnadóttir og Friðjón R. Friðjónsson. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Tómas G. Gíslason, Óskar Ísfeld Sigurðsson, Guðjón Ingi Eggertsson og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Jóhanna Kristrún Birgisdóttir.
 

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram árshlutauppgjör Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur janúar – júní 2026.

    Hreinn Ólafsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. HER26010001
     

    Fylgigögn

  2. Fram fer umræða um breytingar á heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga sem verður um áramótin 2026/2027 þegar heilbrigðiseftirlitin færast frá sveitarfélögum yfir til ríkisins.

    Ásdís Ásbjörnsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. HER26010001
     

  3. Lögð fram svohljóðandi tillaga formanns heilbrigðisnefndar Reykjavíkur:

    Lagt er til að heilbrigðisnefnd Reykjavíkur samþykki að fela framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, í samvinnu við mannauðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar, að leggja niður störf heilbrigðisfulltrúa og annars starfsfólks heilbrigðiseftirlitsins frá og með 1. janúar 2027.

    Greinargerð fylgir tillögu.
    Samþykkt.

    Ásdís Ásbjörnsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. HER26010001
     

    Fylgigögn

  4. Lögð fram svohljóðandi tillaga formanns heilbrigðisnefndar Reykjavíkur:

    Lagt er til að heilbrigðisnefnd Reykjavíkur samþykki að fela mannauðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar að leggja niður starf framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur frá og með 1. janúar 2027.

    Greinargerð fylgir tillögu.
    Með tillögunni er lagt fram bréf sviðsstjóra umhverfis- og skipulagsráðs til formanns heilbrigðisnefndar Reykjavíkur dags. 16. september 2026.
    Samþykkt.

    Ásdís Ásbjörnsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. HER26010001

    Fylgigögn

  5. Fram fer umræða á eldsvoða sem varð í Toppstöðinni í Elliðaárdal 14. september 2026.

    -    Kl. 15:30 víkur Friðjón R. Friðjónsson af fundi og Rúnar Freyr Gíslason tekur sæti á fundinum með rafrænum hætti. HER26010001
     

  6. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 18. ágúst 2026, ásamt kæru nr. UUA2608008, dags. 17. ágúst 2026 þar sem kærð er ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur frá 6. ágúst 2026 um starfsleyfisskyldu starfsemi Sánagús ehf. í Sækoti. Einnig er lagður fram bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 7. september 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu um frestun réttaráhrifa ákvörðunar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um að starfsemi Sánagús ehf. í Sækoti teljist starfsleyfisskyld. Jafnframt er lögð fram greinargerð Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 17. september 2026. HER26010001
     

    Fylgigögn

  7. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 2. september 2026, ásamt kæru nr. UUA2609001, dags. 2. september 2026, þar sem kærð er ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um útgáfu starfsleyfis Skotreynar (Skotveiðifélags Reykjavíkur og nágrennis) á skotsvæði á Álfsnesi. HER26010001
     


     

    Fylgigögn

  8. Lagt fram erindi úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 7. september 2026, ásamt kæru nr. UUA2609003, dags. 3. september, þar sem kærður er dráttur á afgreiðslu kvartana vegna hávaðamengunar frá Tjarnarbíói. HER26010001
     


     

    Fylgigögn

  9. Lagt fram erindi Atvinnuvegaráðuneytisins dags. 16. september 2026 ásamt kæru dags. 2. september 2026 þar sem kærð er ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 5. júní 2026 vegna kvörtunar um meintar villandi merkingar á umbúðum Swiss Miss Milk Chocolate Flavor skyndikakódrykkjardufts. HER26010001
     

    Fylgigögn

  10. Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 9. september 2026 um Ríkislóðir við Seljaveg 32 og Borgartún 5-7, beiðni um athugasemdir vegna rýni á uppbyggingasamningum ásamt umsagnarbeiðni skipulagsfulltrúa dags. 26. ágúst 2026. HER26010001
     


     

    Fylgigögn

  11. Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 2. september 2026 um hænsnabú á Tindstöðum, sbr. mál nr. 936/2026 í skipulagsgátt, ásamt fylgigögnum. HER26010001

    -    Kl. 15:40 víkur Bjarnveig Birta Bjarnadóttir af fundi.
     


     

    Fylgigögn

  12. Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 20. ágúst 2026,27. ágúst 2026, 28. ágúst 2026, 3. september 2026, 10. september 2026 og 11. september 2026. HER26010001


     

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 16:01

Margrét Rós Sigurjónsdóttir Daníel Hjörvar Guðmundsson

Lárus Blöndal Sigurðsson Rúnar Freyr Gíslason

Ólafur Hvanndal Jónsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð heilbrigðisnefndar Reykjavíkur 23. september 2026