Heilbrigðisnefnd - Fundur nr. 174

Heilbrigðisnefnd

Árið 2026, fimmtudaginn 25. júní kl. 10:02, var haldinn 174. fundur heilbrigðisnefndar Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Margrét Rós Sigurjónsdóttir, Daníel Hjörvar Guðmundsson, Friðjón R. Friðjónsson, Harpa Sif Eyjólfsdóttir, Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir og fulltrúi Samtaka atvinnulífsins, Ólafur Jónsson. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Guðjón Ingi Eggertsson, Óskar Ísfeld Sigurðsson, Hreinn Ólafsson, Svava Svanborg Steinarsdóttir, Ástrún Eva Sívertsen og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Magnea Lillý Friðgeirsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á störfum heilbrigðisnefndar Reykjavíkur. HER26010001
     

  2. Lagt fram bréf borgarstjórnar dags. 4. júní 2026 þar sem tilkynnist um kosningu fimm fulltrúa í heilbrigðisnefnd til fjögurra ára og fimm til vara ásamt formannskjör. HER26010001
     

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf borgarstjórnar dags. 18. júní 2026 þar sem tilkynnist að Harpa Sif Eyjólfsdóttir taki sæti varafulltrúa í heilbrigðisnefnd í stað Stein Olav Romslo. HER26010001
     

    Fylgigögn

  4. Fram fer kosning varaformanns í heilbrigðisnefnd Reykjavíkur.
    Samþykkt að Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir verði varaformaður. HER26010001
     

  5. Lagt fram bréf Samtaka atvinnulífsins dags. 9. júní 2026 þar sem tilkynnt er að Ólafur Jónsson taki sæti í heilbrigðisnefnd Reykjavíkur og Heiðrún Björk Gísladóttir sem varamaður. HER26010001
     

    Fylgigögn

  6. Lagt fram fundadagatal fyrir fundi heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir júní - desember 2026. HER26010001
     

    Fylgigögn

  7. Lagt fram árshlutauppgjör Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur fyrir janúar - mars 2026. HER26010001

    -    Kl. 10:17 víkur Hreinn Ólafsson af fundi.
     

    Fylgigögn

  8. Fram fer kynning á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. HER26010001
     

  9. Fram fer kynning á endurnýjun starfsleyfis Reykjavíkurflugvallar. HER26010001

    Dagný Alma Jónasdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
     

  10. Heilbrigðisnefnd leggur fram drög að breyttum samþykktum fyrir heilbrigðisnefnd Reykjavíkurborgar. 
    Samþykkt sbr. 4. mgr. 46. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019, með síðari breytingum. Málið skal afgreitt með tveimur umræðum borgarráðs, sbr. 14. gr. fyrrnefndrar samþykktar og vísað að því loknu til samþykktar ráðherra, sbr. 2. mgr. 59. gr. laga nr. 7/1998. Þegar samþykkt ráðherra liggur fyrir mun heilbrigðisnefnd hlutast til um birtingu nýrrar samþykktar í B-deild Stjórnartíðinda, sbr. 4. mgr. 59. gr. og 2. mgr. 48 gr. laga nr. 7/1998.
    Vísað til borgarráð.
     

  11. Fram fer umræða um verkefni heilbrigðisnefndar Reykjavíkur til áramóta. HER26010001
     

  12. Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur Kringluna 7, sbr. mál nr. 635/2026 í skipulagsgátt, ásamt fylgigögnum. HER26010001
     

    Fylgigögn

  13. Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 5. júní 2026 Loftleiðareit, sbr. mál nr. 558/2026 í skipulagsgátt, ásamt fylgiskjölum. HER26010001
     

    Fylgigögn

  14. Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um Skeifuna 7-9, sbr. mál nr. 634/2026 í skipulagsgátt, ásamt fylgigögnum. HER26010001
     

    Fylgigögn

  15. Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um Spöngina, dags. 5. júní 2026 um mál nr. 556/2026 í skipulagsgátt, ásamt fylgigögnum. HER26010001
     

    Fylgigögn

  16. Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um Stjórnarráðsreitinn, dags. 5. júní 2026, sbr. mál nr. 557/2026 í skipulagsgátt, ásamt fylgiskjölum. HER26010001
     

    Fylgigögn

  17. Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um Þríhnúka, dags. 9. júní 2026, sbr. mál nr. 480/2026 í skipulagsgátt, ásamt fylgigögnum. HER26010001
     

    Fylgigögn

  18. Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um mál nr. S-78/2026 í samráðsgátt, breytingar á reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 830/2022, dags. 13. maí 2026, ásamt fylgigögnum. HER26010001
     

    Fylgigögn

  19. Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um breytingar á reglugerð um varnir gegn olíumengun frá starfsemi á landi, dags. 6. maí 2026, sbr. mál nr. S-71/2026 í samráðsgátt, ásamt fylgigögnum. HER26010001
     

    Fylgigögn

  20. Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um mál nr. S-78/2026 í samráðsgátt, breyting á reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, dags. 12. maí 2026, ásamt fylgigögnum. HER26010001
     

    Fylgigögn

  21. Lögð fram viðbótarumsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um frumvarp til laga um einföldun eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum, 582. mál, dags. 11. júní 2026. HER26010001
     

    Fylgigögn

  22. Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 6. maí 2026, 7. maí 2026, 13. maí 2026, 20. maí 2026, 20. maí 2026, 28. maí 2026, 3. júní 2026, 5. júní 2026, 11. júní 2026, 18. júní 2026 og 19. júní 2026. HER26010001

     

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 11:58

Margrét Rós Sigurjónsdóttir Daníel Hjörvar Guðmundsson

Friðjón R. Friðjónsson Harpa Sif Eyjólfsdóttir

Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir Ólafur Hvanndal Jónsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð heilbrigðisnefndar Reykjavíkur 25. júní 2026