Heilbrigðisnefnd - Fundur nr. 173
Heilbrigðisnefnd
Árið 2026, fimmtudaginn 7. maí kl. 11:01, var haldinn 173. fundur heilbrigðisnefndar Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Hjálmar Sveinsson, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Birkir Ingibjartsson, Einar Sveinbjörn Guðmundsson og fulltrúi samtaka atvinnulífsins, Ólafur Jónsson. Eftirtalinn fulltrúi tók sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Birna Hafstein. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Tómas G. Gíslason, Óskar Ísfeld Sigurðsson, Guðjón Ingi Eggertsson, Svava Svanborg Steinarsdóttir, Helgi Guðjónsson og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Magnea Lillý Friðgeirsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf forsætisnefndar dags. 30. apríl 2026 um leiðréttingu á verklagsreglum varðandi fyrirspurnir og tillögur í ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar. MSS23090170
Fylgigögn
-
Lögð fram umsagnarbeiðni dags. 30. apríl 2025 um undanþágu frá 9. grein reglugerðar nr. 724 frá 2008 um hávaða vegna framkvæmda á Fossvogsbrú. Einnig er lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 30. apríl 2026. HER26010001
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Flokks fólksins og Sjálfstæðisflokksins:
Isavia rekstraraðili Reykjavíkurflugvallar fer fram á að framkvæmdir við stólpa Fossvogsbrúar í sumar fari fram á nóttinni. Hávaðinn sem hlýst af framkvæmdunum mun mögulega valda íbúum í nágrenni Kópavogsmegin og Reykjavíkurmegin ónæði. Æskilegra væri að þessar framkvæmdir færu fram yfir daginn.
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um fund heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga með atvinnuveganefnd Alþingis vegna lagafrumvarps um Stofnun atvinnuveganna sem fór fram 5. maí 2026. HER26010001
-
Fram fer umræða um fund heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga með umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis vegna lagafrumvarps um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum sem fór fram 6. maí 2026. HER26010001
-
Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 15. apríl 2026 um 7. frumvarp til laga um Stofnun atvinnuveganna, sbr. 568. mál á 157. löggjafarþingi 2025-2026, Frumvarp til laga um Stofnun atvinnuveganna. HER26010001
Fylgigögn
-
Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 16. apríl 2026 um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum, sbr. 582. mál á 157. löggjafarþingi 2025-2026. HER26010001
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um aðkomu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur vegna atvika á vatnsverndarsvæðum. HER26010001
-
Fram fer umræða um fræðsluferð heilbrigðisfulltrúa til Helsinki. HER26010001
-
Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 15. apríl 2026, 21. apríl 2026 og 29. apríl 2026. HER26010001
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 11:58
Hjálmar Sveinsson Aðalsteinn Haukur Sverrisson
Birkir Ingibjartsson Birna Hafstein
Einar Sveinbjörn Guðmundsson Ólafur Hvanndal Jónsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð heilbrigðisnefndar Reykjavíkur 7. maí 2026