Heilbrigðisnefnd - Fundur nr. 170

Heilbrigðisnefnd

Árið 2026, fimmtudaginn 19. febrúar kl. 11:04, var haldinn 170. fundur heilbrigðisnefndar Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Hjálmar Sveinsson, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Birkir Ingibjartsson, Björn Gíslason, Einar Sveinbjörn Guðmundsson og fulltrúa Samtaka  atvinnulífsins, Ólafur Jónsson. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Tómas G. Gíslason, Óskar Ísfeld Sigurðsson, Guðjón Ingi Eggertsson, Svava Svanborg Steinarsdóttir og Elísabet Dröfn Erlingsdóttir. Fundarritari var Dagný Alma Jónasdóttir.
 

Þetta gerðist:

  1. Fram fer umræða um fyrirhugaðar breytingar á heilbrigðiseftirliti og um fund umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytis með heilbrigðisnefndum um breytingar á heilbrigðiseftirliti. HER26010001. 
     

  2. Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 17. febrúar 2026 um drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni, sbr. mál nr. S-3/2026 í samráðsgátt. HER26010001.

    Lögð fram svohljóðandi bókun Heilbrigðisnefndar Reykjavíkur:

    Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur tekur undir þær áhyggjur sem fram koma í umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Þær eru í meginatriðum samhljóða  gagnrýni og athugasemdum frá heilbrigðiseftirlitum á landsvísu og Samtökum íslenskra sveitarfélaga. Svo virðist sem fyrirhugaðar breytingar byggi á misskilningi og oftúlkun á tilmælum ESA um stöðu regluverks og eftirlits á sviði heilbrigðismála. Betur færi á að tekin yrðu smærri skref til að tryggja aukna skilvirkni á þessu sviði fremur en alger kerfisbreyting.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samtaka atvinnulífsins:

    Ákvörðun umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og atvinnuvegaráðherra um endurskoðun fyrirkomulags eftirlits á sviði matvæla, hollustuhátta og umhverfis er ekki tekin í tómarúmi. Atvinnulífið hefur bent á fjölmörg dæmi þess að ekki hafi verið gætt að samræmi krafna milli heilbrigðisumdæma, að mjög erfitt geti reynst að bera saman niðurstöður eftirlitsskýrslna, að leiðir eftirlitsþega við að koma upplýsingum á framfæri séu afar mismunandi og jafnvel að á sumum svæðum sé gengið hart fram í eftirliti en lausari tök séu viðhöfð á öðrum. Slík tilvik eru þó ekki aðalatriðið heldur eru þau einkenni gallaðs fyrirkomulags. Mikilvægt er að útfærsla og framkvæmd breytinga verði tekin föstum tökum og tryggt verði að Matvælastofnun og Umhverfis- og orkustofnun takist á við breytt hlutverk. Í stóra samhenginu skiptir í raun ekki máli hver fer með eftirlitið ef tryggt er að það skili tilætluðum árangri undir kringumstæðum þar sem eftirlitsþegar geta með sem skilvirkustum hætti uppfyllt sett skilyrði og eftir atvikum brugðist við athugasemdum.
     

    Fylgigögn

  3. Lögð fram drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu, sbr. mál nr. S-31/2026 í samráðsgátt. HER26010001
     

    Fylgigögn

  4. Fram fer umræða um málefni Reykjavíkurflugvallar, ásamt tilkynningu um ósk Fagráðs um fund um flugmál með Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur um Reykjavíkurflugvöll. HER26010001
     

  5. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 24. september 2025 ásamt kæru nr. 148/2025, dags. 22. september 2025 þar sem kærð er ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 19. ágúst 2025, um útgáfu á endurskoðuðu starfsleyfi kæranda fyrir bálstofu. Einnig eru lagðar fram greinargerðir Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 30. september 2025 um frestun réttaráhrifa og dags. 30. október 2025 að gefa út tímabundið starfsleyfi til eins árs fyrir starfsemi Bálstofu Kirkjugarða Reykjavíkur að Vesturhlíð 6 sem samþykkt var á 1852. afgreiðslufundi heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur þann 19. ágúst 2025. Jafnframt er lagður fram úrskurður umhverfis- og auðlindamála dags. 16. febrúar 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu um að felld verði úr gildi ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur frá 19. ágúst 2025 um að gefa út endurskoðað starfsleyfi fyrir bálstofu í Fossvogi. Við grein 1.3. í sértækum starfsleyfisskilyrðum með starfsleyfinu komi svofelld fyrirmæli: Heimilt er að veita undantekningu frá fyrirmælum þessarar greinar um hvenær bálfarir fari fram. USK25090332

    Fylgigögn

  6. Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 5. febrúar 2026 um Hátún 10 - 14, lýsing, sbr. mál nr. 25/2026 í skipulagsgátt. HER26010001
     

    Fylgigögn

  7. Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 29. janúar 2026 um Lambhagaland við Vesturlandsveg, lýsing, sbr. mál nr. 1681/2025 í skipulagsgátt. HER26010001
     

    Fylgigögn

  8. Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 2. febrúar 2026 um frumvarp til laga um stjórn vatnamála, sbr. mál nr. S-254/2025 í samráðsgátt. HER26010001
     

    Fylgigögn

  9. Fram fer kynning á norrænu matvælaráðstefnunni í Osló sem fór fram á dögunum 19. og 20. janúar 2026. HER26010001
     

  10. Fram fer umræða um ábyrgð heilbrigðisnefnda vegna eftirlits með matvælasnertiefnum, lífrænum matvælum og matjurtum. HER26010001
     

  11. Fram fer kynning á ráðningu á nýjum heilbrigðisfulltrúa fyrir Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, Katrín Huld Sólmundsdóttir. HER26010001
     

  12. Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 22. janúar 2026, 26. janúar 2026, 29. janúar 2026, 5. febrúar 2026 og 12. febrúar 2026. HER26010001
     

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 13:05

Hjálmar Sveinsson Aðalsteinn Haukur Sverrisson

Birkir Ingibjartsson Björn Gíslason

Einar Sveinbjörn Guðmundsson Ólafur Hvanndal Jónsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð heilbrigðisnefndar Reykjavíkur 19. febrúar 2026