Forsætisnefnd - Fundur nr.106

Forsætisnefnd

FORSÆTISNEFND

Ár 2010, föstudaginn 12. nóvember, var haldinn 106. fundur ar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 11.05. Viðstaddar voru Hanna Birna Kristjánsdóttir, Björk Vilhelmsdóttir og Sóley Tómasdóttir. Jafnframt sátu fundinn Elsa Hrafnhildur Yeoman og Ólafur Kr. Hjörleifsson, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Ákveðið að fresta 2. sameiginlegum vinnufundi borgarfulltrúa fram yfir áramót.

- Kl. 11.16 tekur Dagur B. Eggertsson sæti á fundinum.

2. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 16. nóvember nk.
Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrána sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til 1. tl. 2. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:
a. Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks um beina aðkomu borgarbúa að fjárhagsáætlunargerð Reykjavíkurborgar.
b. Tillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna varðandi viðræður um samstarf um endurgerð gamalla báta og skipa.
c. Umræða um málefni Orkuveitu Reykjavíkur (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks).

Fundi slitið kl. 11.22

Hanna Birna Kristjánsdóttir

Björk Vilhelmsdóttir Sóley Tómasdóttir