Forsætisnefnd - Fundur nr. 73

Forsætisnefnd

FORSÆTISNEFND

Ár 2008, föstudaginn 3. október, var haldinn 73. fundur ar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10.20. Viðstaddir voru Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Dagur B. Eggertsson. Jafnframt sátu fundinn Óskar Bergsson, Svandís Svavarsdóttir, Gunnar Eydal, Regína Ásvaldsdóttir og Ólafur Kr. Hjörleifsson, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram að nýju minnisblað skrifstofustjóra borgarstjórnar frá 3. f.m. varðandi kjörgengisskilyrði varamanna í borgarráði, sem vísað var til forsætisnefndar á fundi borgarráðs 4. þ.m. Jafnframt lögð fram samantekt skrifstofu borgarstjórnar varðandi 38. gr. sveitarstjórnarlaga, dags. 18. f.m.
Frestað.

2. Rætt um fyrirkomulag erlendra samskipta Reykjavíkurborgar.

- Kl. 11.08 víkur Gunnar Eydal af fundi.
- Kl. 11.12 víkur Regína Ásvaldsdóttir af fundi.

3. Lagt fram yfirlit móttökufulltrúa yfir móttökur Reykjavíkurborgar á þessu kjörtímabili, dags. í dag.

4. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 7. október nk.
Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrána sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til 1. tl. 2. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:
a. Aðgerðaáætlun í fjármálum Reykjavíkurborgar.

Fundi slitið kl. 11.25

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson

Dagur B. Eggertsson