Forsætisnefnd - Fundur nr. 51

Forsætisnefnd

FORSÆTISNEFND

Ár 2006, fimmtudaginn 16. nóvember, var haldinn 51. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10.10. Viðstödd voru Hanna Birna Kristjánsdóttir og Júlíus Vífill Ingvarsson. Jafnframt sátu fundinn Björk Vilhelmsdóttir, Ólafur F. Magnússon, Svandís Svavarsdóttir, Gunnar Eydal og Ólafur Kr. Hjörleifsson, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 21. nóvember n.k.
Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrána sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til 2. tl. 2. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:
a. Samningur um kaup íslenska ríkisins á eignarhluta Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun, sbr. 2. liður fundargerðar borgarráðs frá 11. nóvember.
b. Umræða um málefni innflytjenda (að beiðni borgarfulltrúa Samfylkingar, Vinstri Grænna og Frjálslynda flokksins).

Fundi slitið kl 10.20

Hanna Birna Kristjánsdóttir

Júlíus Vífill Ingvarsson