Forsætisnefnd - Fundur nr. 47

Forsætisnefnd

FORSÆTISNEFND

Ár 2006, föstudaginn 1. september, var haldinn 47. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10.00. Viðstödd voru Hanna Birna Kristjánsdóttir og Júlíus Vífill Ingvarsson. Jafnframt sátu fundinn Ólafur F. Magnússon, Svandís Svavarsdóttir, Gunnar Eydal og Ólafur Kr. Hjörleifsson, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram yfirlit móttökufulltrúa yfir umsóknir um opinberar móttökur, dags. 20. f.m.
Liðir 2-6 samþykktir.

2. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 5. september n.k.
Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrána sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til 2. tl. 2. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:
a. Kosning fulltrúa í leikskólaráð.
b. Breytingar á skipan menntaráðs.
c. Tillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna og Frjálslyndra um Kárahnjúkastíflu.
d. Tillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna um stofnun Eldfjallafriðlands.
e. Umræða um uppbyggingu fyrir eldri borgara í Reykjavík að ósk borgarfulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.
f. Umræða um málefni nýs leikskólaráðs að ósk borgarfulltrúa Vinstri grænna, Samfylkingar og Frjálslyndra.
g. Umræða um málefni Strætó bs., sbr. 16. liður fundargerðar borgarráðs frá 20. júlí, að ósk borgarfulltrúa Samfylkingar.
h. Umræða um málefni Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur að ósk Ólafs F. Magnússonar.

3. Lagt fram bréf lögfræðings borgarstjórnar, dags. 28. f.m., þar sem lagt er til að við lista fastanefnda í 5. mgr. 13. gr. samþykktar um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg, bætist í II. flokk skoðunarmenn ársreiknings.
Samþykkt.

Fundi slitið kl. 10.35

Hanna Birna Kristjánsdóttir

Júlíus Vífill Ingvarsson