Forsætisnefnd - Fundur nr. 380

Forsætisnefnd

Ár 2026, þriðjudaginn 22. september, var haldinn 380. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 13:05. Viðstödd voru Björg Magnúsdóttir, Einar Þorsteinsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Skúli Helgason. Eftirtaldir áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum: Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir. Eftirtaldir fulltrúar og áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Sanna Magdalena Mörtudóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal og Ólöf Magnúsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 18. september 2026, þar sem óskað er eftir að forsætisnefnd vísi endanlegri tillögu að nýrri samþykkt íþrótta- og útilífsráðs til umsagnar ráðsins, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. MSS26080081

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 18. september 2026, þar sem óskað er eftir að forsætisnefnd vísi endanlegri tillögu að nýrri samþykkt leikskóla- og daggæsluráðs til umsagnar ráðsins, ásamt fylgiskjölum.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi breytingartillögu:

    2. mgr. 5. gr. hljómar svo: Fulltrúar leikskólastjóra, starfsfólk leikskóla og foreldra í leikskóla eiga rétt til setu á fundum ráðsins með málfrelsi og tillögurétt í samræmi við ákvæði laga um leikskóla. Lagt er til að 2. mgr. 5. gr. verði svohljóðandi: Fulltrúar leikskólastjóra, starfsfólk leikskóla og foreldra í leikskóla eiga rétt til setu á fundum ráðsins með málfrelsi og tillögurétt í samræmi við ákvæði laga um leikskóla. Fulltrúi Samtaka sjálfstæðra skóla á einnig rétt til setu á fundum ráðsins með málfrelsi og tillögurétt.

    Tillögu að nýrri samþykkt leikskóla- og daggæsluráðs ásamt breytingartillögu Miðflokksins er vísað til umsagnar leikskóla- og daggæsluráðs.
    Samþykkt. MSS26080081

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 18. september 2026, þar sem óskað er eftir að forsætisnefnd vísi endanlegri tillögu að nýrri samþykkt menningarráðs til umsagnar ráðsins, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. MSS26080081

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 18. september 2026, þar sem óskað er eftir að forsætisnefnd vísi endanlegri tillögu að nýrri samþykkt notendaráðs fatlaðs fólks og öldungaráðs Reykjavíkurborgar til umsagnar ráðsins og hagsmunaaðila, ásamt fylgiskjölum.
    Vísað til umsagnar öldungaráðs, ÖBÍ réttindasamtaka, Þroskahjálpar og Geðhjálpar.
    Fulltrúi Vinstrisins situr hjá við afgreiðslu málsins. MSS26080081

    Fulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
    Fulltrúi Vinstrisins telur mikilvægt að setja ívíðara samráðsferli líkt og gert er ráð fyrir í tillögu Vinstrisins um samráð vegna stofnunar öldunga- og notendaráðs fatlaðs fólks í Reykjavík þannig aðkalla megi fram sjónarmið sem mikilvægt er að hafa í huga við stofnun ráðsins.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 18. september 2026, þar sem óskað er eftir að forsætisnefnd vísi endanlegri tillögu að nýrri samþykkt skóla- og frístundaráðs til umsagnar ráðsins, ásamt fylgiskjölum.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi breytingartillögu:

    Lögð er til svohljóðandi breyting á 2. mgr. 5. gr. tillögu að samþykkt skóla- og frístundaráðs 2. mgr. 5. gr. hljómar svo: Fulltrúar skólastjóra, kennara og foreldra í grunnskólum eiga rétt til setu á fundum ráðsins með málfrelsi og tillögurétt í samræmi við ákvæði laga um grunnskóla. Fulltrúi stjórnenda frístundaheimila og félagsmiðstöðva og fulltrúi Reykjavíkurráðs ungmenna eiga einnig rétt til setu á fundum ráðsins með málfrelsi og tillögurétt. Lagt er til að 2. mgr. 5. gr. verði svohljóðandi: Fulltrúar skólastjóra, kennara og foreldra í grunnskólum eiga rétt til setu á fundum ráðsins með málfrelsi og tillögurétt í samræmi við ákvæði laga um grunnskóla.

    Greinargerð fylgir breytingatillögunni.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi breytingartillögu:

    2. mgr. 5. gr. hljómar svo: Fulltrúar skólastjóra, kennara og foreldra í grunnskólum eiga rétt til setu á fundum ráðsins með málfrelsi og tillögurétt í samræmi við ákvæði laga um grunnskóla. Fulltrúi stjórnenda frístundaheimila og félagsmiðstöðva og fulltrúi Reykjavíkurráðs ungmenna eiga einnig rétt til setu á fundum ráðsins með málfrelsi og tillögurétt. Lagt er til að 2. mgr. 5. gr. verði svohljóðandi: Fulltrúar skólastjóra, kennara og foreldra í grunnskólum eiga rétt til setu á fundum ráðsins með málfrelsi og tillögurétt í samræmi við ákvæði laga um grunnskóla. Fulltrúi stjórnenda frístundaheimila og félagsmiðstöðva, fulltrúi Reykjavíkurráðs ungmenna og fulltrúi Samtaka sjálfstæðra skóla eiga einnig rétt til setu á fundum ráðsins með málfrelsi og tillögurétt.

    Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi frestunartillögu:

    Lagt er til að afgreiðslu á samþykkt skóla- og frístundaráðs úr forsætisnefnd verði frestað þar til búið er að leggjast yfir breytingartillögu meirihlutans varðandi áheyrnarfulltrúa. Mikilvægt er að fá fram t.d. greiningu á kostnaði við að kalla inn fulltrúa og undir hvaða viðmiðum slíkt yrði gert.

    Frestunartillagan er felld með þremur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn atkvæði fulltrúa Vinstrisins.
    Fulltrúi Samfylkingarinnar situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Tillögu að nýrri samþykkt skóla- og frístundaráðs ásamt breytingartillögum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins og fulltrúa Miðflokksins er vísað til umsagnar skóla- og frístundaráðs.
    Fulltrúi Vinstrisins situr hjá við afgreiðslu málsins. MSS26080081

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Áheyrnarfulltrúar frístundaheimila og félagsmiðstöðva og Reykjavíkurráðs ungmenna sinna mikilvægu starfi inni í skóla- og frístundaráði, þau styðja við aukna lýðræðislega þátttöku, opnara samtal, samræmingu og hagsmunagæslu. Því er harðlega gagnrýnt að fjarlægja sæti þessara fulltrúa. Með þessari breytingartillögu fellur tillöguréttur og málfrelsi þessara fulltrúa sem hafa fjölbreytta innsýn í skóla- og frístundamál, niður. Ef þeir verða aðeins boðaðir að sitja fund undir liðum sem varða þá sérstaklega skapast aukið rof milli hagsmunaaðila. Dregur þessi ákvörðun jafnframt úr lýðræðislegri þátttöku ungmenna og minnkar vægi frístundastarfs. Ný samþykkt skóla- og frístundaráðs fyrir þessar breytingar fór í gegnum skóla- og frístundaráð þar sem samþykktin var kynnt, meirihlutinn lét ekki í ljós sín áform á þeim tímapunkti. Ekki sést neinn ágóði í því að fjarlægja fulltrúana úr skóla- og frístundaráði. Nú mun breytingartillaga fara til umsagnar í ráðinu og vona ég að meirihlutinn endurskoði þessa tillögu.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 17. september, þar sem fram kemur að Ari Edwald taki við formennsku í borgarstjórnarflokki Miðflokksins í stað Páls Edwald. MSS26060077

    Fylgigögn

  7. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Vinstrisins um að slembivelja mál á dagskrá borgarstjórnarfunda, sbr. 13. liður fundargerðar forsætisnefndar frá 4. september 2026.
    Tillagan er felld með þremur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn tveimur atkvæðum Samfylkingarinnar og Vinstrisins MSS26090022

    Fylgigögn

  8. Lögð fram að nýju tillaga fulltrú Vinstrisins um að slembivelja sætaröðun í borgarstjórnarsalnum, sbr. 14. liður fundargerðar forsætisnefndar frá 4. september 2026.
    Tillagan er felld með þremur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar og Vinstrisins. MSS26090023

    Fylgigögn

  9. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Lagt er til að forsætisnefnd verði falið að ræða og leggja fram breytingar á samþykktum borgarstjórnar til að tryggja að meiriháttar skipulagsbreytingar innan borgarkerfisins þurfi alltaf að fara fyrir borgarstjórn til samþykktar.

    Frestað. MSS26090100

Fundi slitið kl. 13:55

Björg Magnúsdóttir Einar Þorsteinsson

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Sanna Magdalena Mörtudottir

Skúli Helgason

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð forsætisnefndar 22.9.2026