Forsætisnefnd - Fundur nr. 37

Forsætisnefnd

FORSÆTISNEFND

Árið 2006, fimmtudaginn 16. mars var haldinn 37. fundur ar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12.45. Viðstaddir voru Árni Þór Sigurðsson og Stefán Jón Hafstein. Jafnframt sátu fundinn Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Margrét Sverrisdóttir og Gunnar Eydal, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 21. mars.
Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrána sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til 2. tl. 2. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:

a) Umræða um málefni Hlíðahverfis (ósk allra lista)
Frestað á fundi borgarstjórnar 7. mars sl.
b) Umræða um umferðarskipulag nýs hverfis í Úlfarsárdal (Sjálfstæðisfl.)
Frestað á fundi borgarstjórnar 7. mars sl.
c) Tillaga Ólafs F. Magnússonar um verndun götumyndar húsaraðarinnar Laugavegur 2-6
d) Umræða um forvarnarstefnu Reykjavíkurborgar (Reykjavíkurlisti)

2. Lagt fram yfirlit móttökufulltrúa, dags. 15. þ.m., yfir umsóknir um opinberar móttökur.
Mál 1-3 hafa þegar verið afgreidd af skrifstofustjóra borgarstjórnar.

3. Rætt um fund Reykjavíkurráðs ungmenna sem haldinn verður í fundarsal borgarstjórnar 28. mars n.k.

Fundi slitið kl. 13.10

Árni Þór Sigurðsson
Stefán Jón Hafstein