Forsætisnefnd - Fundur nr. 374
Forsætisnefnd
Ár 2026, föstudaginn 27. mars, var haldinn 374. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10:00. Viðstaddar voru Sanna Magdalena Mörtudóttir, Guðný Maja Riba, Helga Þórðardóttir og Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir. Eftirtaldir áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum: Alexandra Briem og Líf Magneudóttir. Eftirtalinn áheyrnarfulltrúi tók sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal og Ólöf Magnúsdóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, 19. mars 2025, þar sem tilkynnt er að á fundi borgarstjórnar þann 17. mars 2026 hafi Guðný Maja Riba, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Helga Þórðardóttir og Magnea Gná Jóhannsdóttir verið kjörnar 1., 2., 3. og 4. varaforsetar borgarstjórnar. Jafnframt er tilkynnt að Andrea Helgadóttir, Sabine Leskopf, Alexandra Briem, Einar Þorsteinsson og Hildur Björnsdóttir hafi verið kjörin varafulltrúar í forsætisnefnd. Jafnframt voru lagðar fram tilkynningar um að Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir verði áheyrnarfulltrúi Viðreisnar og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir til vara, Stefán Pálsson verði áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna og Líf Magneudóttir til vara og Alexandra Briem verði áheyrnarfulltrúi Pírata og Magnús Davíð Norðdahl til vara. MSS22060040
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um fyrirkomulag funda borgarstjórnar fram að kosningum. MSS25040015
- Kl. 10:02 Tekur Magnea Gná Jóhannsdóttir sæti á fundinum með rafrænum hætti.
-
Lagt fram bréf borgarritara, dags. 17. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir að forsætisnefnd staðfesti hjálagðar verklagsreglur um fyrirspurnir og tillögur í ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar.
Samþykkt.
Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins. MSS23090170Þorsteinn Gunnarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um móttökur Reykjavíkurborgar og boðun í þær.
Þorsteinn Gunnarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 11:06 víkur Líf Magneudóttir af fundi og Stefán Pálsson tekur þar sæti. MSS25100123
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 17. febrúar 2026, varðandi yfirlit yfir opinberar móttökur frá mars til desember 2025, ásamt fylgiskjölum. MSS24060043
Þorsteinn Gunnarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um heildarendurskoðun á samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa. MSS23010278
-
Lagt fram bréf menningar- og íþróttasviðs, dags. 11. mars 2026, sbr. afgreiðslu menningar- og íþróttaráðs frá 6. mars 2026 á tillögu fulltrúa í ungmennaráði Árbæjar og Holta um hækkun frístundastyrks barna og ungmenna. MSS26020041
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf menningar- og íþróttasviðs, dags. 23. mars 2026, sbr. afgreiðslu menningar- og íþróttaráðs frá 20. mars 2026 á tillögu fulltrúa í ungmennaráði Laugardals, Bústaða og Háaleitis um lengingu opnunartíma sundlauga. MSS26020039
Fylgigögn
-
Lögð fram beiðni borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur, dags. 27. mars 2026, þar sem borgarfulltrúarnir óska eftir heimild forsætisnefndar til að fá að tilnefna áheyrnarfulltrúa í nefndina. MSS26030041
Frestað.
Fundi slitið kl. 11:52
Sanna Magdalena Mörtudottir Guðný Maja Riba
Helga Þórðardóttir Magnea Gná Jóhannsdóttir
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð forsætisnefndar 27.03.2026 - Prentvæn útgáfa