Forsætisnefnd
Ár 2026, föstudaginn 13. mars, var haldinn 373. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10:07. Viðstaddar voru Sanna Magdalena Mörtudóttir, Andrea Helgadóttir, Helga Þórðardóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir og Marta Guðjónsdóttir. Eftirtaldir áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum: Alexandra Briem, Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir og Stefán Pálsson. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal og Ólöf Magnúsdóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 17. mars 2026. Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:
a) Innkaupastefna Reykjavíkurborgar 2026-2030, fyrri umræða (að beiðni borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna)
b) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um innleiðingu sjálfkeyrandi tækni
c) Stefna í málaflokki fatlaðs fólks 2026-2036, fyrri umræða (að beiðni borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna)
d) Tillaga borgarfulltrúa Framsóknar um frístundastyrk fyrir 67 ára og eldri í Reykjavíkurborg
e) Tillaga borgarfulltrúa Viðreisnar um að gera raunkostnað sýnilegan fyrir borgarbúa
f) Tillaga borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur (óháðra) um nýja samgöngustefnu Reykjavíkurborgar
g) Umræða um tillögu að nýju deiliskipulagi við Holtsgötu 10-12 og Brekkustíg 16 (að beiðni borgarfulltrúa Framsóknarflokksins)
h) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um betri álagsdreifingu umferðar
j) Umræða um íbúalýðræði í Reykjavík (að beiðni borgarfulltrúa Framsóknarflokksins)
k) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um Miklubrautargöng í einkaframkvæmd
l) Umræða um skólamál í Laugardal (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins) MSS26010032 -
Lagt fram bréf Kjartans Magnússonar, Mörtu Guðjónsdóttur og Helga Áss Grétarssonar, dags. 9. mars 2026, þar sem tilkynnt er að þau hafi sagt skilið við borgarstjórnarflokk Sjálfstæðisflokksins og muni starfa saman sem óháðir borgarfulltrúar út kjörtímabilið. MSS26030041
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi skrifstofu borgarstjórnar, dags. 11. mars 2026, varðandi aðgerðir til að bregðast við trúnaðarbrotum.
Vísað til meðferðar stafræns ráðs. MSS25030124Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 10. mars 2026, varðandi afgreiðslu skóla- og frístundaráðs á tillögu fulltrúa í ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða um að veita ungmennum á aldrinum 13-18 ára bókastyrk. MSS26020043
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 11. febrúar 2026, varðandi tillögu fulltrúa í ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða um að fulltrúar í Reykjavíkurráði ungmenna fái áheyrnarrétt í fleiri fagráðum.
Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjórnar MSS26020042Fylgigögn
-
Lögð fram skýrsla Gallup, dags. mars 2026, um niðurstöður könnunar Gallup á trausti til borgarstjórnar.
Matthías Þorvaldsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið MSS24030071
Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Ljóst er að lítið traust til borgarstjórnar er alvarlegur áfellisdómur yfir störfum hennar. Á síðustu tíu árum hefur traust til borgarstjórnar nær undantekningarlaust mælst lægst meðal þeirra stofnana sem teknar eru til mælinga. Á þessu kjörtímabili náði traustið hæst 19% árið 2024, en mælist nú aðeins 13%. Það er skýr vísbending um að borgin þarfnist breytinga.
Fylgigögn
-
Samþykkt að taka á dagskrá bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 13. mars 2026, varðandi lausnarbeiðni Guðnýjar Maju Riba.
Vísað til borgarstjórnar. MSS26030058Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Framsóknarflokksins:
Óskað er eftir upplýsingum um hvers vegna upplýsingaspjaldi í Ráðhúsi Reykjavíkur með upplýsingum um þá fulltrúa sem kjörnir hafa verið í Borgarstjórn Reykjavíkur hafi ekki verið sett upp. Markmið spjaldsins var að auka sýnileika og vitund almennings um kjörna fulltrúa, sem og að efla tengsl borgarbúa við lýðræðislega stjórnsýslu borgarinnar. Upplýsingaspjaldið átti einnig að nýtast sem fræðsluefni við heimsóknir grunnskóla í Ráðhúsið, þar sem starfsemi borgarstjórnar er kynnt fyrir börnum og unglingum. Samþykkt var að spjaldið væri komið upp haustið 2025.
Vísað til umsagnar viðburðarstjórnar. MSS25050140
- Kl. 11:40 víkur Magnea Gná Jóhannsdóttir af fundi.
Fundi slitið kl. 11:45
Sanna Magdalena Mörtudottir Andrea Helgadóttir
Helga Þórðardóttir Marta Guðjónsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Forsætisnefnd 13.03.2026 - Prentvæn útgáfa