Forsætisnefnd - Fundur nr. 372

Forsætisnefnd

Ár 2026, föstudaginn 27. febrúar, var haldinn 372. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10:06. Viðstaddar voru Guðný Maja Riba, Helga Þórðardóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir og Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir. Eftirtaldir áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum: Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir og Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn: Dís Sigurgeirsdóttir og Ólöf Magnúsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 3. mars 2026. MSS26010032

    Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:

    a)    Tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna um aðgerðir gegn einmanaleika og um eflingu frístundaþjónustu
    b)    Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um fjármögnun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og endurskoðun ákvæða hans
    c)    Tillaga borgarfulltrúa Viðreisnar um stofnun innviðasjóðs Reykjavíkur
    d)    Tillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokksins um fjölgun sumarnámskeiða fyrir börn á grunnskólaaldri
    e)    Tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna um bætt loftgæði
    f)    Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um hverfislögreglustöð í Breiðholti
    g)    Umræða um tillögu að nýju deiliskipulagi við Holtsgötu 10-12 og Brekkustíg 16 (að beiðni borgarfulltrúa Framsóknarflokksins)
    h)    Umræða um öryggismál á skiptistöðinni í Mjódd (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins)
    j)    Umræða um íbúalýðræði í Reykjavík (að beiðni borgarfulltrúa Framsóknarflokksins)

    -    Kl. 10:07 tekur Sanna Magdalena Mörtudóttir sæti á fundinum.

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Samkvæmt samkomulagi fara mál á dagskrá eftir stærð flokka. Þannig er meirihlutinn alltaf með fyrsta mál og svo fer röðun mála eftir stærð flokka í minnihluta. Framsókn lýsir yfir furðu að mál þeirra sé sett númer fjögur á dagskrá, sem er eftir smærri flokkum, án þess að samtal hafi átt sér stað við borgarfulltrúa Framsóknar um breytingar á uppröðun mála. Framsókn var ekki hluti af neinu samkomulagi um breytta uppröðun á dagskrá fundarins.

  2. Lagt fram minnisblað Sameykis, ódags., um vernd starfskjara starfsfólks í almenningssamgöngum við útboð.

    Kári Sigurðsson og Ívar Örn Ívarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS25030107

    Fylgigögn

  3. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um aðgengi að borgarstjórnarfundum á streymisveitum, sbr. 9 lið fundargerðar forsætisnefndar frá 30. maí 2025. Einnig er lögð fram umsögn þjónustu- og nýsköpunarsviðs dags. 17. febrúar 2026.
    Vísað til meðferðar stafræns ráðs. MSS25050139

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn styður að tillögunni sé vísað áfram til frekari vinnslu en leggur áherslu á að samkvæmt umsögninni sem fylgir tillögunni er hægt að setja fundi inn á aðra streymisveitur strax í dag og þannig auka aðgengi almennings að upptökum funda borgarstjórnar.

    Fylgigögn

  4. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um spretthóp til að móta tillögur um samtal kjörinna fulltrúa á borgarstjórnarfundum, sbr. 7. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 30. janúar 2026.
    Tillagan er felld með þremur atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. MSS26010165

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins ásamt áheyrnarfulltrúa Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar samstarfsflokkanna telja að markmið tillögunnar um að efla samtal kjörinna fulltrúa á borgarstjórnarfundum séu málefnaleg og mikilvæg. Eðlilegt sé að reglulega sé litið til vinnubragða og fyrirkomulags funda með það að markmiði að styrkja lýðræðislega umræðu og tengsl við íbúa. Fulltrúarnir telja þó jafnframt að forgangsraða þurfi tíma og vinnu forsætisnefndar með hliðsjón af stöðu kjörtímabilsins. Þar sem fáir borgarstjórnarfundir eru eftir er að mati fulltrúa ekki tímabært að hefja vinnu af þessu tagi nú. Eðlilegra er að ný borgarstjórn, sem tekur við umboði kjósenda á næsta kjörtímabili , hafi svigrúm til að móta sjálf verklag og skipulag borgarstjórnarfunda.

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn gagnrýnir harðlega að meirihlutinn sé ekki tilbúinn að fara í vinnu við að skoða hvernig megi betur tengja fundi borgarstjórnar betur við það sem er að gerast í borginni og efla samtal borgarfulltrúa á fundi borgarstjórnar. Ekki er vanþörf á að tengja borgarstjórn betur við það sem gerist í borginni frá degi til dags og það sem brennur á borgarbúum. Einnig er gagnrýnt að meirihlutinn hafi beðið í mánuð með að taka tillöguna inn á dagskrá aftur, betur hefði farið á því að hún hefði farið á dagskrá 13. febrúar sl. Þetta er til marks um að meirihlutinn vill í raun ekki gera neinar breytingar til að efla lýðræðislega umræðu á fundum borgarstjórnar.

    Fylgigögn

  5. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um breytingu á III. kafla samþykktar um kjör og starfsaðstæður kjörinna fulltrúa, sbr. 4. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 30. janúar 2026. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu borgarstjórnar, dags. 2. febrúar 2026.
    Frestað. MSS23010278

    -    Kl. 12:50 víkur Guðný Maja Riba af fundi og Stefán Pálsson tekur þar sæti.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 17. febrúar 2026, varðandi uppfærðar verklagsreglur um fyrirspurnir og tillögur ásamt drögum að uppfærðum reglum.
    Frestað. MSS23090170

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Óskað var eftir því að þessari tillögu sé frestað og greinargerð sé látin fylgja með tillögunni þar sem fjallað er um tilefni þessarar tillögu og nauðsyn hennar. Meirihlutinn var ekki tilbúinn að samþykkja að greinargerð fylgi tillögunni sem er mjög sérstakt.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Fulltrúar samstarfsflokkanna telja það ljóst að frestunartillaga þeirra hafi gengið lengst. Afgreiðsla málsins var því eðlileg og í samræmi við fundarsköp.

  7. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja til að breytingar verði gerðar á samþykkt um kjör og starfsaðstæður kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg þannig að 12. grein verði svohljóðandi: Fyrsti varamaður hvers framboðslista eða sá fulltrúi framboðslista sem tilnefndur er sem slíkur og sinnir verkefnum fyrir framboðslistann samkvæmt ákvörðun hans, sem fulltrúa á í borgarstjórn fær greidd föst laun sem nema 70% af grunnlaunum borgarfulltrúa. Innifalið í þessu eru, á sama hátt og skv. 3. gr., greiðslur fyrir setu í nefndum og ráðum borgarinnar með þeim fyrirvörum sem þar eru tilgreindir, þ.m.t. um skerðingu grunnlauna.Sitji fyrsti varaborgarfulltrúi hvorki í nefnd í flokki I né flokki II falla föst laun hans niður. Er þá aðeins greidd þóknun í samræmi við ákvæði 19. gr. þegar varaborgarfulltrúinn tekur sæti í borgarstjórn.Ákvæði samþykktar þessarar gilda að öðru leyti um starfskjör fyrstu varamanna framboðslista eftir því sem við á.

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjórnar. MSS23010278

  8. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja til að breytingar verði gerðar á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar þannig að 63. gr. verði svohljóðandi: 
    Borgarstjórn kýs eftirtalin ráð til að fara með tiltekin mál eftir sérstökum samþykktum sínum og því sem lög mæla fyrir um:
    A. Til eins árs:
    Sjö borgarfulltrúa í borgarráð og sjö til vara.
    B. Til fjögurra ára:
    1. Sjö menn í mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð og sjö til vara. Formannskjör.
    2. Sjö menn í menningar-, íþrótta- og tómstundaráð og sjö til vara. Formannskjör.
    3. Sjö menn í skóla- og frístundaráð og sjö til vara. Formannskjör.
    4. Sjö menn í stafrænt ráð og sjö til vara. Formannskjör.
    5. Sjö menn í umhverfis- og skipulagsráð og sjö til vara. Formannskjör.
    6. Sjö menn í velferðarráð og sjö til vara. Formannskjör.
    Aðal- og varamenn þeirra ráða sem talin eru upp í B-lið skulu koma úr hópi aðal- eða varamanna hvers framboðslista í borgarstjórn.

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjórnar. MSS22080219

Fundi slitið kl. 13:28

Sanna Magdalena Mörtudottir Helga Þórðardóttir

Magnea Gná Jóhannsdóttir Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

Stefán Pálsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð forsætisnefndar frá 27. febrúar