Forsætisnefnd - Fundur nr. 359

Forsætisnefnd

Ár 2025, föstudaginn 9. maí, var haldinn 359. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10:00. Viðstödd voru Sanna Magdalena Mörtudóttir, Guðný Maja Riba, Magnea Gná Jóhannsdóttir og Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns. Eftirtaldir áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum: Einar Sveinbjörn Guðmundsson og Líf Magneudóttir. Eftirtalinn fulltrúi tók sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Marta Guðjónsdóttir. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal og Ólöf Magnúsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 13. maí 2025.
    Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:

    a)     Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2024, sbr. 1. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 6. maí 2025 - síðari umræða
    b)     Umræða um bílastæðamál (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins) MSS25010046

    -     Kl. 10:06 tekur Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir sæti á fundinum. 

  2. Fram fer umræða um reglulegt samtal Reykjavíkurborgar við verkalýðshreyfinguna. MSS25030107

  3. Fram fer umræða um fundadagatal borgarstjórnar. MSS23010287

  4. Fram fer umræða fundarsköp. MSS25040015

    -     Kl. 11:15 víkur Einar Sveinbjörn Guðmundsson af fundi og Helga Þórðardóttir tekur sæti. 

  5. Lögð fram tillaga borgarfulltrúa Pírata um breytt orðaval í borgarstjórn.
    Vísað til vinnslu á vinnudegi forsætisnefndar. MSS25050032

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 6. febrúar 2025, sbr. samþykkt borgarstjórnar frá 4. febrúar 2025 um að vísa tillögu borgarfulltrúa Flokks fólksins um Elliðaárdal sem áfangastað til meðferðar forsætisnefndar, ásamt fylgiskjölum. 
    Vísað til umsagnar Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins. MSS25020004
     

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 11:41

Sanna Magdalena Mörtudottir Guðný Maja Riba

Magnea Gná Jóhannsdóttir Marta Guðjónsdóttir

Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns

PDF útgáfa fundargerðar
Forsætisnefnd 9.5.2025 - Prentvæn útgáfa