Forsætisnefnd - Fundur nr. 358

Forsætisnefnd

Ár 2025, föstudaginn 2. maí, var haldinn 358. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10:40. Viðstödd voru Sanna Magdalena Mörtudóttir, Guðný Maja Riba, Einar Þorsteinsson og Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns. Eftirtaldir áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum: Helga Þórðardóttir, Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir og Líf Magneudóttir. Eftirtalinn fulltrúi tók sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Marta Guðjónsdóttir. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal og Ólöf Magnúsdóttir sem ritaði fundargerð.
 

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 6. maí 2025. MSS25010046
    Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:

    a)    Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2024, sbr. 1. lið fundargerðar borgarráðs frá 2. maí 2025 – fyrri umræða
    b)    Kosning í stafrænt ráð
    c)    Kosning í umhverfis- og skipulagsráð 

  2. Lögð fram svohljóðandi tillaga forseta borgarstjórnar, dags. 2. maí 2025:

    Lagt er til að forsætisnefnd samþykki að fyrirkomulag borgarstjórnarfunda þegar ársreikningur Reykjavíkurborgar 2024 verður afgreiddur verði með sama sniði og árin 2022 og 2023. Við fyrri umræðu um ársreikning sem fram fer á fundi borgarstjórnar 6. maí nk. taka einungis oddvitar til máls. Ræðutími þeirra verður rýmkaður í 30 mínútur en að öðru leyti gilda hefðbundnar reglur um fundarsköp. Á dagskrá verður fyrri umræða um ársreikning auk fundargerða. Við seinni umræðu um ársreikning sem fram fer á fundi borgarstjórnar 13. maí er gert ráð fyrir öllum borgarfulltrúum á mælendaskrá og hefðbundnar reglur um fundarsköp gilda. Á dagskrá verður seinni umræða um ársreikning auk fundargerða. MSS25010046

    Samþykkt 

Fundi slitið kl. 10:46

Sanna Magdalena Mörtudottir Einar Þorsteinsson

Guðný Maja Riba Marta Guðjónsdóttir

Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns

PDF útgáfa fundargerðar
Forsætisnefnd 2.5.2025 - Prentvæn útgáfa