Forsætisnefnd - Fundur nr. 330

Forsætisnefnd

Ár 2023, föstudaginn 29. september, var haldinn 330. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10:03. Viðstödd voru Magnea Gná Jóhannsdóttir, Líf Magneudóttir, Pawel Bartoszek, Sabine Leskopf. Eftirtaldir áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum: Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir. Eftirtaldir fulltrúar og áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Marta Guðjónsdóttir og Trausti Breiðfjörð Magnússon. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal, Ólöf Magnúsdóttir og Bjarni Þóroddsson sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 3. október 2023.
    Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:
    a) Umræða um nýja byggð í Keldnalandi (að beiðni borgarfulltrúa Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar)
    b) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um einföldun á regluverki og ferlum
    c) Umræða um lífsgæðakjarna (að beiðni borgarfulltrúa Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar)
    d) Tillaga borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um að hætta við leiguverðshækkanir hjá Félagsbústöðum
    e) Umræða um efndir meirihlutasáttmálans (að beiðni borgarfulltrúa Flokks fólksins)
    f) Tillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna um aðgerðir til að auka þátttöku innflytjenda í kosningum
    g) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um fýsileikakönnun á stuðningi við uppsetningu sólarsella á heimilum í Reykjavík
    h) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um aðgerðaáætlun um almenningssamgöngur
    i) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að snjallvæðing umferðarljósa verði í forgangi við endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. MSS23010044

  2. Fram fer kynning á verklagsreglum um fyrirspurnir og tillögur í ráðum og nefndum. MSS23090170

  3. Lagt fram bréf innviðaráðuneytisins, dags. 25. september 2023, þar sem fram kemur að breytingar á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórn sem samþykktar voru á fundi borgarstjórnar þann 20. júní sl. hafi verið birtar í Stjórnartíðindum, ásamt fylgiskjölum. MSS22080219

    Fylgigögn

  4. Fram fer umræða um fyrirkomulag á fundi borgarstjórnar 19. september sl. MSS23010002

  5. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 27. september 2023, varðandi beiðni Olgu Margrétar Cilia um lausn frá störfum til loka kjörtímabils.
    Vísað til borgarstjórnar. MSS23090151

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 27. september 2023, varðandi tillögu að breytingu á viðauka 2.6 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar um fullnaðarafgreiðsluheimildir sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, ásamt fylgiskjölum.
    Frestað. MSS22080219

Fundi slitið kl. 11:51

Magnea Gná Jóhannsdóttir Líf Magneudóttir

Marta Guðjónsdóttir Pawel Bartoszek

Sabine Leskopf

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð forsætisnefndar frá 29. september 2023 - Prentvæn útgáfa