Forsætisnefnd - Fundur nr. 29

Forsætisnefnd

FORSÆTISNEFND

Ár 2005, fimmtudaginn 27. október, var haldinn 29. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.30. Viðstaddir voru Alfreð Þorsteinsson og Stefán Jón Hafstein. Jafnframt sat fundinn Gunnar Eydal, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram yfirlit móttökufulltrúa um afgreiðslu umsókna sem borist hafa um opinberar móttökur Reykjavíkurborgar og yfirlit yfir móttökur afgreiddar af skrifstofustjóra borgarstjórnar, sbr. liði 3-6.
Forsætisnefnd samþykkir lið 1 styrk til FRÍ vegna Evrópuþings og lið 2 móttöku vegna Siglingasambands Íslands.

2. Drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 1. nóvember n.k.
Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrána sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til 2. tl. 2. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:

a) Tillaga ÓFM um áframhaldandi reksturHeilsuverndarstöðvar Reykjavíkur
b) Tillaga ÓFM um fyrirhugaða sölu á hlut Reykjavíkur í Landsvirkjunar
c) Umræða um málefni Grafarvogs og Kjalarness (að ósk allra lista)

Fundi slitið kl 14.50

Alfreð Þorsteinsson
Stefán Jón Hafstein