Forsætisnefnd - Fundur nr. 258

Forsætisnefnd

Ár 2019, föstudaginn 14. júní, var haldinn 258. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Tjarnarbúð í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10:00. Viðstödd voru Dóra Björt Guðjónsdóttir, Pawel Bartoszek, Sabine Leskopf, Eyþór Laxdal Arnalds og Marta Guðjónsdóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Elín Oddný Sigurðardóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Vigdís Hauksdóttir og Kolbrún Baldursdóttir. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal og Bjarni Þóroddsson sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 18. júní 2019.

    Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:

    a)    Nýjar siðareglur fyrir kjörna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg, sbr. 9. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 14. júní 2019
    b)    Nýjar reglur um skráningu fjárhagslegra hagsmuna borgarfulltrúa og trúnaðarstörf utan borgarstjórnar, sbr. 10. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 14. júní 2019
    c)    Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um markvissa gróðursetningu til að minnka vindálag í Reykjavík
    d)    Umræða um hlutverk Reykjavíkurflugvallar í öryggiskerfi landsins (að beiðni borgarfulltrúa Miðflokksins)
    e)    Umræða um tafa- og mengunargjöld sem fela munu í sér aukna gjaldtöku á umferð og auknar álögur á borgarbúa (að beiðni borgarfulltrúa Miðflokksins)
    f)    Tillaga borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um endurgreiðslu útsvars til hinna tekjulægstu
    g)    Tillaga borgarfulltrúa Flokks fólksins um að nýta metangas sem Sorpa framleiðir á metanvagna Strætó bs.
    h)    Kosning forseta borgarstjórnar til eins árs og fjögurra varaforseta
    i)    Kosning tveggja skrifara til eins árs og tveggja til vara
    j)    Kosning sjö borgarráðsfulltrúa til eins árs og sjö til vara, formannskjör
    k)    Kosning varamanna í forsætisnefnd
    l)    Kosning í menningar-, íþrótta- og tómstundaráð, formannskjör
    m)    Kosning í barnaverndarnefnd
    n)    Kosning fimm fulltrúa í stjórn Faxaflóahafna sf. til eins árs og fimm til vara, formannskjör
    o)    Kosning fimm fulltrúa í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur sf. til eins árs og fimm til vara; formanns- og varaformannskjör R19010084

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Það er mjög óeðlilegt að samþykkja nýjar reglur um skráningu fjárhagslegra hagsmuna borgarfulltrúa og trúnaðarstörf utan borgarstjórnar áður en umbeðið álit Persónuverndar um málið hefur borist forsætisnefnd. Ný lög um persónuvernd hafa tekið gildi sem herða mjög á persónuvernd einstaklinga. Það er merki um slaka stjórnsýslu Reykjavíkurborgar að samþykkja slíkar reglur áður en öll gögn í málinu liggja fyrir. Eins er á það bent að sambærilegar reglur um embættismenn Reykjavíkur eru ekki í samfloti með reglum fyrir kjörna fulltrúa eins og minnihlutinn hefur ítrekað óskað eftir. Bent er á að Reykjavík hefur ekki gætt að því að uppfylla lög um persónuvernd eins og gerðist í afliðnum sveitarstjórnarkosningum en það mál er nú til meðferðar þriggja manna nefndar sem Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefur nú skipað. Því er eðlilegt að þessu máli verði frestað til haustsins þegar úrskurður Persónuverndar liggur fyrir. Eins er vakin athygli á því að siðareglur fyrir embættismenn eru ekki heldur í samfloti með siðareglum kjörinna fulltrúa.

    Fulltrúar Pírata, Viðreisnar og Samfylkingarinnar ásamt áheyrnarfulltrúa Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Á síðasta fundi forsætisnefndar var ákveðið að biðja um álit Persónuverndar á reglum um skráningu fjárhagslegra hagsmuna en þó með þeim fyrirvara að það tefði ekki afgreiðslu málsins. Eins og kemur fram í drögum um reglurnar er gert ráð fyrir því að þær taki gildi þegar álitið liggur fyrir eftir 4-8 vikur eftir staðfestingu borgarráðs. Þó er talið fara vel á því að kjósa um málið á vettvangi borgarstjórnar frekar en í borgarráði og þar sem borgarstjórn fer í sumarleyfi eftir þennan fund hefur verið ákveðið að klára málið á þessum fundi.

  2. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 12. júní 2019, um endurskoðun á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar ásamt viðaukum. R18060129
    Vísað til borgarstjórnar.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Borgarstjórn er fjölskipað stjórnvald, eða á að vera það. Þannig er það ekki í praksís. Hér er verið að leggja fram breytingar á samþykktum til samþykktar. Hér hefur minnihlutinn ekki átt neina aðkomu þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Leiðin til að koma að breytingu á samþykktum er að leggja fram tillögur. Tillögur um breytingar á samþykktum lagðar fram af minnihlutanum hafa flestar ef ekki allar verið felldar. Minnihlutinn hefur þannig enga aðkomu að neinu er varðar samþykktir borgarinnar. Dæmi um tillögu minnihlutans er að áheyrnafulltrúar minnihlutans fái að sitja í öllum ráðum og nefndum nema barnaverndarnefnd og að borgarstjórnarfundir hefjist fyrr en báðar þessar tillögur voru felldar. Þetta er einungis brot af tilraunum minnihlutans til að hafa einhver áhrif á stjórnsýslu borgarinnar sem finna má í hinum ýmsu samþykktum.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Viðreisnar ásamt áheyrnarfulltrúa Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Ýmsar hugmyndir minnihlutans hafa ratað inn í breytingar á samþykktum og er því vísað á bug að minnihlutinn geti ekki haft áhrif á samþykktir. Öllum er frjálst að senda inn breytingartillögur á fund borgarstjórnar og það er sjálfsagt að eiga gott samtal um málið milli umræðna og ræða mögulegar breytingar á þeim drögum sem lögð eru fyrir fyrstu umræðu borgarstjórnar um breytingar á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 12. júní 2019, varðandi endurskoðun á samþykkt fyrir skipulags- og samgönguráð. R18060129
    Vísað til borgarstjórnar.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 12. júní 2019, varðandi endurskoðun á samþykkt fyrir mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð. R18060129
    Vísað til borgarstjórnar.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 12. júní 2019, varðandi endurskoðun á samþykkt fyrir skóla- og frístundaráð. R18060129
    Vísað til borgarstjórnar.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 12. júní 2019, varðandi endurskoðun á samþykkt fyrir velferðarráð. R18060129
    Vísað til borgarstjórnar.

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 12. júní 2019, varðandi endurskoðun á samþykkt fyrir umhverfis- og heilbrigðisráð. R18060129
    Vísað til borgarstjórnar.

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 12. júní 2019, varðandi samþykkt fyrir íbúaráð Reykjavíkurborgar. R18060129
    Vísað til borgarstjórnar.

    Fylgigögn

  9. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 12. júní 2019, varðandi nýjar siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg. R18060141
    Vísað til borgarstjórnar.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Siðareglur snúa að mörgu í mannlegum samskiptum. Valdhroki og valdníðsla hefur oft ríkt á fundum ráða og nefnda í borginni t.d. í formi banns við að bregðast við/tjá sig, beiðni um að ljúka bókun verið hunsuð, fundi slitið til að kæfa umræðu og skort á samvinnu um frestun mála. „Verkferli“ sem meirihlutinn samþykkti einhliða til að opna leið fyrir starfsmenn sem vilja kvarta yfir borgarfulltrúum er engan veginn í samræmi við siðareglur. Hvað þá óhróður sem borgarritari dreifði, með samþykki borgarstjóra, um fulltrúa minnihlutans og þeir sagðir „tuddar“ á sameiginlegu vinnusvæði með þeim orðum að „þeir sem bregðast við eru þeir seku“. Einn fulltrúi meirihlutans kynti undir óhróðurinn á sama vefsvæði með því að nafngreina „hrekkjusvínin“ eins og fulltrúinn orðaði það. Loks má nefna ábyrgðarleysi og brot valdhafa á siðareglum í braggamálinu en í siðareglum er kveðið á um að „hafa í heiðri heiðarleika, rækja störf sín af ábyrgð og forðast að aðhafast nokkuð sem falið getur í sér misnotkun á almannafé“. Á meðan valdhafar í borginni koma fram af ábyrgðarleysi, hörku og óbilgirni finnst borgarfulltrúa Flokks fólksins varla vera mikil alvara að baki. Siðareglur geta ekki einungis verið falleg orð á blaði.

    Fylgigögn

  10. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 12. júní 2019, varðandi endurskoðun á reglum um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum borgarfulltrúa og trúnaðarstörfum utan borgarstjórnar, ásamt fylgiskjölum. R17080118
    Vísað til borgarstjórnar.

    Fylgigögn

  11. Lögð fram drög að nýjum reglum um móttökur Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum. R18100244
    Samþykkt.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Það skiptir miklu máli að þarna ríki fullkomið gegnsæi og að birtur sé sundurliðaður kostnaður eftir hverja móttöku á vef borgarinnar. Eins er mikilvægt að útboð verði samkvæmt innkaupareglum jafnvel þótt áætluð upphæð sé undir viðmiði innkaupareglna. Ekkert meinar borginni að kanna verð fyrirfram eða leita tilboða þótt lágmarksviðmiði innkaupareglna sé ekki náð vegna kaupa á þjónustu. Hvað varðar beiðni um móttöku þá getur hver og einn lagt fram beiðni um móttöku samkvæmt reglum. Móttökur eru margar í Reykjavíkurborg, stundum allt að þrjár jafnvel fjórar í viku þegar mest lætur. Borgarfulltrúi Flokks fólksins vill ítreka mikilvægi þess að ALLAR beiðnir um móttökur séu sýnilegar, rökin fyrir þeim og hvernig tilefnið samræmist hagsmunum borgarinnar samanber það sem segir í reglum. Til að borgarbúar geti áttað sig á af hverju sumar beiðnir um móttökur eru samþykktar en aðrar ekki þurfa að fylgja með rök.

    Fylgigögn

  12. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 30. apríl 2019, með yfirliti yfir samþykktar móttökur Reykjavíkurborgar. R18040007

    Fylgigögn

  13. Lögð fram svohljóðandi tillaga forsætisnefndar, dags. 12. júní 2019:

    Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fella niður reglulega borgarstjórnarfundi í júlí og ágúst nk. skv. heimild í 4. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 715/2013. Í sumarleyfi borgarstjórnar fer borgarráð með sömu heimildir og borgarstjórn hefur ella sbr. ákvæði 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga. R19050232

    Vísað til borgarstjórnar.

    Fylgigögn

  14. Lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 27. mars 2019, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um kostnað vegna fundaherferðar borgarstjóra, sbr. 9. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 15. mars 2019. R18110228

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þessi svör/umsögn eru engan vegin viðunandi hvað þá fullnægjandi. Sífellt er klifað á því að reynt sé að halda kostnaði við hljóðkerfi, myndbandsupptökur og streymi frá opnum fundum í lágmarki. En með því að semja aðeins um einn fund í einu er ólíklegt að gott tilboð fáist. Þess utan er ekkert í innkaupareglum sem meinar að spurt sé um verð eða boðið út þótt áætluð fjárhæð innkaupa með virðisaukaskatti sé undir 7 m.kr. Stærsta meinið er að sífellt er miðað við einn fund í einu í stað þess að gera verðfyrirspurn í röð funda „pakka“ eða leita tilboða í „pakka“ af fundum. Borgin þarf að fara að hugsa eins og „hagsýn húsmóðir/-faðir“ og hætta að kaupa alltaf eina litla einingu í einu og fara að kalla þess í stað eftir tilboðum í „magn“. Það eru engin geimvísindi að sekkur af hrísgrjónum er hlutfallslega ódýrari en lítill pakki af hrísgrjónum. Ef fyrirsjáanleg er fundarröð 5-10 funda þá skal gera verðfyrirspurn og /eða óska tilboða í þá alla í einu.

    Fylgigögn

  15. Lagt fram bréf mannréttindaskrifstofu, dags. 22. maí 2019, þar sem tilkynnt er um afgreiðslu mannréttinda- og lýðræðisráðs þann 9. maí 2019 á tillögu fulltrúa í ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða um að tryggja samráð við börn og ungmenni um öll málefni sem varða þau. R19030292

    Fylgigögn

  16. Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 29. apríl 2019, þar sem tilkynnt er um afgreiðslu velferðarráðs þann 24. apríl 2019 á tillögu fulltrúa í ungmennaráði Kjalarness um gjaldfrjáls námsgögn í framhaldsskólum. R18020251

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúi Flokks fólksins er sammála því að námsgögn ungmenna í framhaldsskólum á aldrinum 16-18 eru á forræði ríkisins. Í bókun meirihlutans og Flokks fólksins kemur fram að fulltrúar skora á ríkið til að fara að fordæmi margra sveitarfélaga og hafa námsgögn í framhaldsskólum gjaldfrjáls. Fulltrúar fela einnig fulltrúa sínum á Velferðarvaktinni að koma þessari tillögu inn á borð þar til umræðu Mikilvægt er að það verði gert eins fljótt og unnt er.

    Fylgigögn

  17. Lagt fram bréf íþrótta- og tómstundasviðs, dags. 14. maí 2019, þar sem tilkynnt er um afgreiðslu menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs þann 13. maí 2019 á tillögu frá fundi borgarstjórnar og fjölmenningarráðs á kynningu á frístundakorti á erlendum tungumálum. R19050087

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúa Flokks fólksins finnst mikilvægt að auka meðvitund meðal Reykvíkinga með annað móðurmál en íslensku um hvernig nýta megi alla þjónustu Reykjavíkurborgar, þ.m.t. frístundakortið. Gallinn er hins vegar sá að reglur um frístundakort eru alltof strangar og ósveigjanlegar sem veldur því að það er ekki nægjanlega vel nýtt, sem dæmi í Breiðholti þar sem mesta fjölmenningin er. Varla er það markmið borgarinnar að kortið sé ekki betur nýtt en raun bera vitni. Nýting er allt niður í 65%. Nú hefur verið samþykkt að verja miklum fjármunum í að kynna kortið á fleiri tungumálum. Hér er byrjað á öfugum enda. Þýða á reglur um frístundakort sem eru allsendis óboðlegar. Reglur eru hreinlega ósanngjarnar gagnvart sumum börnum. Sem dæmi er með að öllu er óraunhæft að skilyrða kortið við 10 vikna námskeið hið minnsta. Mörg börn treysta sér ekki til að skuldbinda sig í svo langan tíma en myndu gjarnan taka þátt í styttri námskeiðum. Að skilyrða húsnæði með rekstrarleyfi er að sama skapi óþarfa skilyrði. Væri ekki nær að laga til þessar reglur áður en sett er fjármagn í auglýsingaátak á fleiri tungumálum?

    Fylgigögn

  18. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um að minnka kostnað vegna funda borgarstjóra, sbr. 10. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 15. mars 2019. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu borgarstjóra og borgarritara um tillöguna, dags. 24. apríl 2019. R18110228
    Tillagan er felld með þremur atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

    Fulltrúa Pírata, Samfylkingarinnar og Viðreisnar ásamt áheyrnarfulltrúa Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Samkvæmt umsögn skrifstofu borgarstjóra og borgarritara reynir Reykjavíkurborg þegar að halda kostnaði vegna opinna funda og funda borgarstjóra í lágmarki. Af tillögunni þykir ekki ljóst með hvaða hætti ætti að ná kostnaðinum niður frekar og án frekari vitneskju um hve gerlegt verkefnið er ekki talið fýsilegt að samþykkja tillöguna á þessu stigi. Sjálfsagt er þó að hvetja til áframhaldandi ráðdeildar í þessum þjónustuinnkaupum sem öðrum.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Það kemur á óvart að meirihlutinn vill ekki minnka kostnað funda borgarstjóra. Þar er í gangi mikið bruðl sér í lagi er varðar kostnað við hljóðkerfi, myndbandsupptökur og streymi frá opnum fundum í lágmarki. Til dæmis er sífellt samið um einn fund í einu í stað þess að fá tilboð í pakka af fundum. En með því að semja aðeins um einn fund í einu er ólíklegt að gott tilboð fáist. Þess utan er ekkert í innkaupareglum sem meinar að spurt sé um verð eða boðið út þótt áætluð fjárhæð innkaupa með virðisaukaskatti sé undir 7 m.kr. Borgin þarf að fara að hugsa eins og „hagsýn húsmóðir/faðir“ og hætta að kaupa alltaf eina litla einingu í einu og fara að kalla þess í stað eftir tilboðum í „magn“. Það eru engin geimvísindi að sekkur af hrísgrjónum er hlutfallslega ódýrari en lítill pakki af hrísgrjónum. Ef fyrirsjáanleg er fundarröð 5-10 funda þá skal gera verðfyrirspurn og/eða óska tilboða í þá alla í einu.

    Fylgigögn

  19. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að fundargerðir Félagsbústaða séu lagðar fyrir borgarráð, sbr. 9. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 3. maí 2019. R19050038
    Samþykkt.

    -    Kl. 12:00 víkur Eyþór Laxdal Arnalds af fundinum.

    Fylgigögn

  20. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

    Borgarfulltrúi Flokks fólksins vill spyrja af hverju ekki er í siðareglum kveðið á um að borgaryfirvöld skuli ávallt hafa í heiðri heiðarleika, rækja störf sín af ábyrgð og forðast að aðhafast nokkuð sem falið getur í sér misnotkun á almannafé. Það ákvæði var í fyrri siðareglum. R18060141

  21. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokksins:

    1. Hvenær og hvernig á að skipa fulltrúa í ný íbúaráð úr íbúasamtökum hverfanna? 2. Hvenær og hvernig á að skipa fulltrúa úr foreldrafélögum hverfanna? 3. Hvenær og hvernig á að skipa fulltrúa með slembivali? 4. Hver er kostnaðurinn við þessar kosningar? 5. Hvað er áætlað að starfsmaðurinn sem á að ráða til að vinna fyrir íbúaráðin kosti á ársgrundvelli? R18060129

    Vísað til umsagnar mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu.

  22. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

    Við ákvörðun um opinbera móttöku segir í reglum að horfa skal til þess að tilefnið þjóni hagsmunum Reykjavíkurborgar og Reykvíkinga og/eða sé í samræmi við hlutverk Reykjavíkur sem höfuðborgar og í samræmi við samþykkta stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda. Þá skal horft til sjónarmiða um mannréttindi og samfélagslega ábyrgð við ákvörðun um opinbera móttöku. 3. gr. Borgarfulltrúi Flokks fólksins óskar eftir að fá upplýsingar um áætlaðan kostnað þessara viðburða/móttöku sem hér eru lögð fram og með hvaða hætti þær þjóna hagsmunum Reykjavíkur sem höfuðborgar sbr. reglur um móttökur. Um er að ræða: Höfða friðarsetur í samstarfi við Davis Center við Harvard háskóla; stjórnendur menningarhúsa í Skandinavíu og Kvennasmiðju. Eins er óskað eftir að betur sé gerð grein fyrir tilefninu. Í öllum tilfellum tekur Reykjavíkurborg á sig allan kostnað. R18100244

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.

  23. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

    Borgarfulltrúa Flokks fólksins fýsir að vita nánar um hvenær og hvort fulltrúa borgarinnar á Velferðarvaktinni hafi nú þegar verið falið að koma þessari tillögu inn á borð Vaktarinnar til að hún verði rædd. Málið er brýnt og vill borgarfulltrúi Flokks fólksins sjá þessi mál komin í viðunandi farveg hjá ríkinu áður en skólar byrja í haust. Hér er um sanngirnismál að ræða eins og borgin og ríkisstjórnin vita. Börn eru börn til 18 ára aldur og ekki er verjandi að mismuna þeim með þessum hætti milli skólastiga. R18020251

Fundi slitið klukkan 12:20

Dóra Björt Guðjónsdóttir Pawel Bartoszek

Sabine Leskopf Marta Guðjónsdóttir