Forsætisnefnd - Fundur nr. 234

Forsætisnefnd

 

Ár 2018, föstudaginn 6. apríl, var haldinn fundur nr. 234 í forsætisnefnd. Fundurinn var haldinn í Tjarnarbúð, Ráðhúsi Reykjavíkur, og hófst kl. 10:30. Viðstödd voru Líf Magneudóttir, Elsa Hrafnhildur Yeoman og Halldór Auðar Svansson. Einnig sátu fundinn Magnús Már Guðmundsson, Halldór Halldórsson, Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, Helga Björk Laxdal og Linda Sif Sigurðardóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram drög að dagskrá aukafundar borgarstjórnar þann 10. apríl nk.

    Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:

    Stefna Reykjavíkurborgar í málefnum innflytjenda, flóttafólks og hælisleitenda, sbr. 19. lið fundargerðar borgarráðs frá 20. mars

    Tillaga Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, óháðs borgarfulltrúa, um snjallsímabann, sbr. 6. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 20. mars

    Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um eflingu innviða vegna rafbílavæðingar

    Umræða um nýjungar í samgöngumálum

    Umræða um aðgerðir í leikskólamálum

    Umræða um þjónustukönnun Gallup fyrir sveitarfélög (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins)

    Umræða um þjónustukönnun Maskínu fyrir Reykjavíkurborg (að beiðni borgarfulltrúa Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata)

    Umræða um málefni Austurbæjar, Miðbæjar og Norðurmýrar

    Kosning í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur

    Kosning í barnaverndarnefnd Reykjavíkur

    Fylgigögn

  2. Fram fer umræða um kjörna fulltrúa og Workplace.

  3. Fram fer umræða um borgarfulltrúa og boðun varamanna.

  4. Lagt fram svar velferðarsviðs, dags. 15. mars 2018, við fyrirspurn Sveinbjargar B. Sveinbjörnsdóttur, um kostnað vegna reksturs gistiskýlis fyrir húsnæðislausa karla, sbr. 13. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 6. febrúar 2018.

    Fylgigögn

  5. Fram fer umræða um aðkomu kjörinna fulltrúa að málefnum barnaverndar Reykjavíkur.

Fundi slitið klukkan 11:29

Líf Magneudóttir