Forsætisnefnd
Ár 2018, föstudaginn 2. mars, var haldinn fundur nr. 232 í forsætisnefnd. Fundurinn var haldinn í Tjarnarbúð, Ráðhúsi Reykjavíkur, og hófst kl. 10:32. Viðstödd voru Elsa Hrafnhildur Yeoman og Halldór Auðar Svansson. Einnig sátu fundinn Magnús Már Guðmundsson, Marta Guðjónsdóttir, Helga Björk Laxdal og Linda Sif Sigurðardóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 6. mars nk. R18010085
Kl. 10:38 tekur Elín Oddný Sigurðardóttir sæti á fundinum.
Kl. 10:40 tekur Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir sæti á fundinum.
Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:
Niðurstöður stýrihóps um mótun nýsköpunarstefnu Reykjavíkurborgar á sviði velferðartækni, sbr. 23. lið fundargerðar borgarráðs frá 1. mars
Niðurstöður starfshóps um mótun stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum eldri borgara 2018-2022, sbr. 24. lið fundargerðar borgarráðs frá 1. mars
Tillaga Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, óháðs borgarfulltrúa, um farsímabann í grunnskólum
Umræða um lóðaúthlutanir Reykjavíkurborgar á kjörtímabilinu
Umræða um afgreiðslutíma tillagna og fyrirspurna (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins)
Umræða um skaðsemi plasts (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins)
Umræða um málefni Kjalarness (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins)
-
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 21. febrúar 2018, þar sem fram kemur að tillögur forsætisnefndar og ofbeldisvarnarnefndar um viðbrögð við kynbundinni og kynferðislegri áreitni og kynbundnu ofbeldi í starfsumhverfi borgarinnar hafi verið samþykktar á fundi borgarstjórnar þann 20. febrúar 2018. R17120041
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á yfirliti yfir mætingar í ráð og nefndir borgarinnar júlí-desember 2017. R18020266
-
Fram fer umræða um boðun varamanna. R18020266
-
Lögð fram drög að breytingum á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar. R17100263
Samþykkt. -
Lagt fram bréf nefndarsviðs Alþingis, dags. 28. febrúar 2018, þar sem óskað er eftir umsögn Reykjavíkurborgar um frumvarp til sveitarstjórnarlaga (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn), 190. mál. R18020258
Skrifstofustjóra borgarstjórnar falið að senda nefndarsviði Alþingis umsögn Reykjavíkurborgar.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar velferðarsviðs, dags. 19. janúar 2018, við fyrirspurn Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, óháðs borgarfulltrúa, um kaup á íbúðum sem framleigðar eru til velferðarsviðs, sbr. 13. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 16. janúar 2018. R18010240
Fylgigögn
-
Lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 31. janúar 2018, við fyrirspurn Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, óháðs borgarfulltrúa, um forgangsakreinar Strætó, sbr. 14. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 16. janúar 2018. R18010241
Fylgigögn
-
Lagt fram svar skóla- og frístundasviðs, dags. 26. febrúar 2018, við fyrirspurn Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, óháðs borgarfulltrúa, um kostnað við aðgerðir til að manna störf á skóla- og frístundasviði, sbr. 13. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 6. febrúar 2018. R18020049
Fylgigögn
-
Lagt fram svar skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, dags. 27. febrúar 2018, við fyrirspurn Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, óháðs borgarfulltrúa, um hversu margar íbúðir og búsetueiningar Reykjavíkurborg keypti á árinu 2017, sbr. 13. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 20. febrúar 2018. R18020049
Fylgigögn
-
Lagt fram svar velferðarsviðs, dags. 27. febrúar 2018, við fyrirspurn Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, óháðs borgarfulltrúa, um úthlutun almennra íbúða árið 2017, sbr. 14. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 20. febrúar 2018. R18020049
Fylgigögn
-
Lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 21. febrúar 2018, við fyrirspurn Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, óháðs borgarfulltrúa, um kostnað við þrengingu gatna, hjólreiðastíga og forgangsakreina Strætó, sbr. 13. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 6. febrúar 2018. R18020049
Fylgigögn
-
Lagt fram svar fjármálaskrifstofu, dags. 16. febrúar 2018, við fyrirspurn Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, óháðs borgarfulltrúa, um hvaða lögmannsstofur Reykjavíkurborg átti viðskipti við 2015-2017 og upphæð greiðslna til þeirra, sbr. 13. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 6. febrúar 2018. R18020049
Fylgigögn
-
Lagt fram svar skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, dags. 27. febrúar 2018, við fyrirspurn Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, óháðs borgarfulltrúa, um fjölda íbúða sem falla undir þríhliða samning SEA, VEL og Félagsbústaða, sbr. 16. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 20. febrúar 2018. R18020049
Fylgigögn
-
Lagt fram svar fjármálaskrifstofu, dags. 16. febrúar 2018, við fyrirspurn Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, óháðs borgarfulltrúa, um athugun á sameiningum fjármálaskrifstofa fyrirtækja í B-hluta, sbr. 13. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 6. febrúar 2018. R18020049
Fylgigögn
-
Lögð fram tilkynning Framsóknar og flugvallarvina, dags. í dag, þar sem fram kemur að Rakel Dögg Óskarsdóttir taki sæti sem áheyrnarfulltrúi í menningar- og ferðamálaráði í stað Magnúsar Arnars Sigurðarsonar. R14060109
-
Lögð fram tilkynning Framsóknar og flugvallarvina, dags. í dag, þar sem fram kemur að Ingvar Jónsson taki sæti sem áheyrnarfulltrúi í umhverfis- og skipulagsráði í stað Sævars Þórs Jónssonar. Jafnframt að Aðalsteinn Haukur Sverrisson taki sæti sem varaáheyrnarfulltrúi í ráðinu í stað Guðfinnu Jóhönnu Guðmundsdóttur. R14060110
Fundi slitið klukkan 11:49