Forsætisnefnd
Ár 2018, föstudaginn 2. febrúar, var haldinn fundur nr. 230 í forsætisnefnd. Fundurinn var haldinn í Tjarnarbúð, Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 9.08. Viðstödd voru Líf Magneudóttir og Halldór Auðar Svansson. Einnig sátu fundinn Eva Einarsdóttir, Magnús Már Guðmundsson, Marta Guðjónsdóttir og Linda Sif Sigurðardóttir sem ritaði fundargerð.
-
Lagt fram svar velferðarsviðs, dags. 19. janúar 2018, við fyrirspurn Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, óháðs borgarfulltrúa, um kaup á íbúðum sem framleigðar eru til velferðarsviðs, sbr. 13. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 16. janúar 2018.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 31. janúar 2018, við fyrirspurn Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, óháðs borgarfulltrúa, um forgangsakreinar Strætó, sbr. 14. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 16. janúar 2018.
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um endurskoðun siðareglna fyrir kjörna fulltrúa.
Fylgigögn
-
Lagt fram erindisbréf stýrihóps um endurskoðun siðareglna.
-
Fram fer umræða um viðhorfskönnun á meðal kjörinna fulltrúa.
-
Lögð fram drög að tillögum ofbeldisvarnarnefndar og forsætisnefndar um hvernig bregðast skuli við kynbundinni og kynferðislegri áreitni í starfsumhverfi borgarinnar.
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 11. janúar 2018, varðandi uppfærðar reglur Reykjavíkurborgar um starfs- og stýrihópa.
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um fjölgun borgarfulltrúa.
-
Fram fer umræða um endurskoðun á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.
-
Fram fer umræða um endurskoðun á samþykktum um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg.
-
Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 6. febrúar nk.
Fundi slitið klukkan 10:27
Líf Magneudóttir
Halldór Auðar Svansson