Forsætisnefnd
Ár 2018, föstudaginn 5. janúar, var haldinn fundur nr. 227 í forsætisnefnd. Fundurinn var haldinn í Tjarnarbúð, Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10.35. Viðstödd voru Líf Magneudóttir, Elsa Hrafnhildur Yeoman og Halldór Auðar Svansson. Einnig sátu fundinn Magnús Már Guðmundsson, Marta Guðjónsdóttir, Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, Helga Björk Laxdal og Linda Sif Sigurðardóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 9. janúar nk.
Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:
Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um aukið lóðaframboð
Umræða um mengunarvalda í borginni
Umræða um skýrslu starfshóps um nýliðun og bætt starfsumhverfi grunnskólakennara
Umræða um um málefni Breiðholts (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins)
-
Fram fer umræða um fjölgun borgarfulltrúa.
Fundi slitið klukkan 10:48
Líf Magneudóttir