Forsætisnefnd - Fundur nr. 220

Forsætisnefnd

Ár 2017, föstudaginn 29. september, var haldinn 220. fundur í forsætisnefnd. Fundurinn var haldinn í Tjarnarbúð í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10.35. Viðstödd voru Líf Magneudóttir, Elsa H. Yeoman og Halldór Auðar Svansson. Einnig sátu fundinn Marta Guðjónsdóttir, Magnús Már Guðmundsson, Jóna Björg Sætran, Helga Björk Laxdal og Bjarni Þóroddsson sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lagt til að sameiginlegum fundi borgarstjórnar og öldungaráðs verði frestað.

    Samþykkt að fela skrifstofu borgarstjórnar að finna nýja dagsetningu.

  2. Lögð fram tillaga, dags. 25. september 2016, um breytingu á lögreglusamþykktum Reykjavíkur.

    Vísað til borgarstjórnar.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 7. september 2017, um endurskoðun á samþykkt fyrir stjórnkerfis- og lýðræðisráð.

    Vísað til borgarstjórnar.

    Stefán Eiríksson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 6. september 2017, um endurskoðun á samþykkt fyrir umboðsmann borgarbúa.

    Vísað til borgarstjórnar.

    Stefán Eiríksson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram tölvubréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 19. september 2017, sbr. samþykkt stjórnkerfis- og lýðræðisráðs frá 18. september 2017, á verklagsreglum um samskipti umboðsmanns borgarbúa við stjórnkerfis- og lýðræðisráð.

     

    Stefán Eiríksson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram tölvubréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 8. september 2017, um endurskoðaða starfslýsingu umboðsmanns borgarbúa.

    Stefán Eiríksson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 20 september 2017, um samþykkt borgarstjórnar frá 19. september á tillögu forsætisnefndar um fjölgun borgarfulltrúa.

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 20. september 2017, þar sem tilkynnt er að Linda Jónsdóttir taki sæti sem áheyrnarfulltrúi í hverfisráði Grafarholts og Úlfarsárdals í stað Guðfinnu Jóhönnu Guðmundsdóttur. Jafnframt er tilkynnt að Sigurður Ingi Jónsson taki sæti sem varaáheyrnarfulltrúi í stað Lindu.

    Fylgigögn

  9. Fram fer umræða um ársskýrslu umboðsmanns borgarbúa fyrir árið 2016.

    Frestað.

  10. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 3. október nk. R17010108

     

    Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:

     

    a.) Málstefna Reykjavíkurborgar, sbr. 28. lið fundargerðar borgarráðs frá 21. september

    b.) Frístundastefna Reykjavíkurborgar

    c.) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um úttekt á kostnaði og aðgerðum vegna veikinda starfsmanna Reykjavíkurborgar

    d.) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um skilyrðislausa stuðningsþjónustu við fatlaða og afnám biðlista

    e.) Tillaga borgarfulltrúa Framsóknar og flugvallarvina um að skerpa á innkaupareglum Reykjavíkurborgar til að sporna við hugsanlegu kennitöluflakki

    f.) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um endurskoðun á fyrirkomulagi borgarstjórnarkosninga í því skyni að tryggja áhrif ólíkra íbúahverfa í borgarstjórn

    g.) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um merkingar á gangbrautum

    h.) Umræða um umferðaröryggi (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins)

    i.) Kosning í hverfisráð Grafarholts og Úlfarsárdals

Fundi slitið klukkan 11:30

Líf Magneudóttir