Forsætisnefnd - Fundur nr. 19

Forsætisnefnd

FORSÆTISNEFND

Ár 2005, fimmtudaginn 14. apríl, var haldinn 19. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 13.18. Viðstaddir voru Stefán Jón Hafstein og Alfreð Þorsteinsson. Jafnframt sátu fundinn Ólafur F. Magnússon, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Ólafur Kr. Hjörleifsson, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram yfirlit móttökufulltrúa yfir umsóknir um opinberar móttökur, afgreiðslur skrifstofustjóra borgarstjórnar og gestamóttökur borgarstjóra, dags. í dag.
Töluliðir 1-3 samþykktir.
Hildur Kjartansdóttir sat fundinn við meðferð málsins.

2. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 19. apríl n.k.
Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrána sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til 2. tl. 2. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:
a. Umræða um samgönguáætlun.
b. Umræða um málefni sjálfstæðra grunnskóla og tónlistarskóla í borginni.
c. Þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál Reykjavíkurborgar árin 2006-2008; síðari umræða.

Fundi slitið kl 13.35

Stefán Jón Hafstein
Alfreð Þorsteinsson