Forsætisnefnd - Fundur nr. 179

Forsætisnefnd

FORSÆTISNEFND

Ár 2015, föstudaginn 29. maí, var haldinn fundur í forsætisnefnd. Fundurinn var haldinn í Tjarnarbúð, Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10.38. Viðstödd voru Sóley Tómasdóttir, Elsa Yeoman og Halldór Auðar Svansson. Einnig sátu fundinn Heiða Björg Hilmisdóttir, Halldór Halldórsson, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, Helga Björk Laxdal og Linda Sif Sigurðardóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 2. júní nk. 

Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:

a) Umræða um skýrslu innri endurskoðunar um ferðaþjónustu fatlaðra (að beiðni borgarfulltrúa allra flokka)

b) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um starfsemi Þorrasels og þjónustu við eldri borgara í Vesturbænum

c) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um störf fyrir nemendur 8. bekkjar í grunnskólum Reykjavíkur

d) Kosning í hverfisráð Breiðholts

e) Kosning í hverfisráð Hlíða

2. Lögð fram drög að reglum Reykjavíkurborgar um framkvæmd íbúakosninga.

Frestað.

Forsætisnefnd óskar eftir kynningu frá skrifstofu borgarstjórnar á framkvæmd kosninga á næsta fundi nefndarinnar.

3. Lagt fram minnisblað skrifstofu borgarstjórnar til forsætisnefndar, dags. 27. maí, um hátíðahöld vegna 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna. Jafnframt er lögð fram fjárhagsáætlun, ódags.

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

4. Fram fer umræða um afrekasýningu kvenna.

5. Samþykkt að halda næsta starfsdag forsætisnefndar þann 11. september nk.

Fundi slitið kl. 11.26

Sóley Tómasdóttir

Elsa Yeoman Halldór Auðar Svansson