Forsætisnefnd - Fundur nr. 135

Forsætisnefnd

FORSÆTISNEFND

Ár 2012, föstudaginn 11. maí, var haldinn 135. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 11.00. Viðstaddar voru Elsa Yeoman og Björk Vilhelmsdóttir. Jafnframt sat fundinn Þorleifur Gunnlaugsson og Helga Björk Laxdal, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 15. maí nk.
Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrána, sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til 1. tl. 2. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

a. Tillaga um flutning Járnsmiðsins (að beiðni borgarfulltrúa Besta flokksins og Samfylkingarinnar)

b. Tillaga um frítt í sund og frítt bókasafnskort fyrir atvinnulausa og fólk sem nýtur fjárhagsaðstoðar (að beiðni borgarfulltrúa Vinstri grænna)

Fundi slitið kl. 11.17

Elsa Yeoman

Björk Vilhemsdóttir