Forsætisnefnd - Fundur nr. 129

Forsætisnefnd

FORSÆTISNEFND

Ár 2012 föstudaginn, 3. febrúar, var haldinn 129. fundur ar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 9.40. Viðstödd voru Elsa Hrafnhildur Yeoman, Björk Vilhelmsdóttir og Óttarr Ólafur Proppé. Jafnframt sátu fundinn Hanna Birna Kristjánsdóttir, Sóley Tómasdóttir og Helga Björk Laxdal sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 7. febrúar nk.
Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekið á dagskrá sem sérstakur dagskrárliður með vísan til 1. tl. 2. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

Umræða um sameiningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (að beiðni borgarfulltrúa Besta flokksins og Samfylkingarinnar)
Umræða um sameiningarmál á skóla- og frístundasviði (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna)
Umræða um málefni Grafarholts og Úlfarsárdals (að beiðni borgarfulltrúa allra flokka)

2. Fram fór umræða um fundarsköp borgarstjórnar.

Fundi slitið kl. 10.10

Elsa Yeoman

Björk Vilhemsdóttir