Forsætisnefnd - Fundur nr. 127

Forsætisnefnd

FORSÆTISNEFND

Ár 2011, föstudaginn 9. desember, var haldinn 127. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 11.00. Viðstaddir voru Elsa Hrafnhildur Yeoman, Björk Vilhelmsdóttir, Óttarr Ólafur Proppé. Einnig sátu fundinn Hanna Birna Kristjánsdóttir, Sóley Tómasdóttir og Helga Björk Laxdal, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 13. desember nk.
Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrána, sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til 1. tl. 2. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.
Fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar, seinni umræða

2. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 20. desember nk.
Samþykkt að fella niður fund forsætisnefndar þann 16. desember nk.

Fundi slitið kl. 11.30

Elsa Yeoman

Björk Vilhemsdóttir Óttarr Ólafur Proppé