Forsætisnefnd - Fundur nr. 126

Forsætisnefnd

FORSÆTISNEFND

Ár 2011, fimmtudaginn 1. desember, var haldinn 126. fundur ar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12.10. Viðstödd voru Elsa Hrafnhildur Yeoman, Björk Vilhelmsdóttir og Óttarr Ólafur Proppé. Jafnframt sátu fundinn Hanna Birna Kristjánsdóttir, Sóley Tómasdóttir og Úlfhildur Jóna Þórarinsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 6. desember nk.
Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalið mál verði tekið á dagskrána, sem sérstakur dagskrárliður með vísan til 1. tl. 2. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2012; síðari umræða.

Samþykkt að fundur borgarstjórnar hefjist kl. 14.30.

Fundi slitið kl. 12.28

Elsa Yeoman

Björk Vilhemsdóttir Óttarr Ólafur Proppé