Forsætisnefnd - Fundur nr. 110

Forsætisnefnd

FORSÆTISNEFND

Ár 2011, föstudaginn 28. janúar, var haldinn 110. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 11.05. Viðstaddar voru Hanna Birna Kristjánsdóttir og Björk Vilhelmsdóttir. Jafnframt sátu fundinn Einar Örn Benediktsson og Ólafur Kr. Hjörleifsson, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram yfirlit móttökufulltrúa yfir opinberar móttökur Reykjavíkurborgar, dags. í dag.
Móttökufulltrúi situr fundinn undir þessum lið.

2. Ákveðið er að stefnt skuli að sameiginlegum fundi borgarfulltrúa og fulltrúa í Reykjavíkurráði ungmenna þriðjudaginn 12. apríl nk.

3. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 1. febrúar nk.
Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrána sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til 1. tl. 2. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:
a. Umræða um Orkuveitu Reykjavíkur og yfirlýsingar stjórnarformanns um breytingar á rekstrarformi félagsins (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna).
b. Umræða um málefni tónlistarskóla (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks).
c. Umræða um hagræðingu og samráð í menntakerfinu (að beiðni borgarfulltrúa allra flokka).

Fundi slitið kl. 11.20

Hanna Birna Kristjánsdóttir

Björk Vilhelmsdóttir