Forsætisnefnd - Fudnur nr. 20

Forsætisnefnd

FORSÆTISNEFND

Ár 2005, fimmtudaginn 28. apríl, var haldinn 20. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.25. Viðstaddir voru Stefán Jón Hafstein og Alfreð Þorsteinsson. Jafnframt sátu fundinn Gísli Helgason, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Gunnar Eydal og Jónína H. Björgvinsdóttir, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram yfirlit móttökufulltrúa yfir umsóknir um opinberar móttökur, afgreiðslur skrifstofustjóra borgarstjórnar og gestamóttökur borgarstjóra, dags. í dag.
Töluliðir 2, 4, 5 og 6 samþykktir.
Hildur Kjartansdóttir sat fundinn við meðferð málsins.

2. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 3. maí n.k.
Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrána sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til 2. tl. 2. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:
a. Ársreikningur Reykjavíkurborgar 2004.
b. Umræða um Vatnsmýrina.
c. Umræða um málefni sjálfstæðra grunnskóla og tónlistarskóla í borginni.

3. Rætt um ársreikning Reykjavíkurborgar 2004.

Fundi slitið kl. 16.45

Stefán Jón Hafstein
Alfreð Þorsteinsson