Forsætisnefnd - Fudnur nr. 128

Forsætisnefnd

FORSÆTISNEFND

Ár 2012, föstudaginn 13. janúar, var haldinn 128. fundur í . Fundurinn var haldinn á Höfðatorgi og hófst kl. 11.40. Viðstaddir voru Elsa Hrafnhildur Yeoman og Björk Vilhelmsdóttir. Einnig sat fundinn Þorleifur Gunnlaugsson og Helga Björk Laxdal, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 17. janúar nk.
Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrána, sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til 1. tl. 2. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

Tillaga um samráð við borgarbúa við gerð fjárhagsáætlunar (að beiðni borgarfulltrúa VG)
Umræða um málefni eldri borgara (að beiðni fulltrúa Sjálfstæðisflokksins)
Gjaldskrárstefna (sérstakur liður)
Umræða um málefni Breiðholts (að beiðni borgarfulltrúa allra flokka)

- Kl. 11.45 tekur Hanna Birna Kristjánsdóttir sæti á fundinum.

Fundi slitið kl. 11.55

Elsa Yeoman

Björk Vilhemsdóttir