Forsætisnefnd - Forsætisnefnd föstudaginn 16. október 2026 nr. 382

Forsætisnefnd

Ár 2026,  föstudaginn 16. október, var haldinn 382. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10:04. Viðstödd voru Björg Magnúsdóttir, Bjarni Guðjónsson, Einar Þorsteinsson, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Skúli Helgason. Eftirtaldir áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum: Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal og Ólöf Magnúsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 20. október 2026. Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:
    a) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um athugun á útvistun á rekstri Fjölskyldu- og húsdýragarðsins
    b) Tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar um greiningu á áhrifum gervigreindar og sjálfvirknivæðingar á Reykjavíkurborg
    c) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um aukið gagnsæi í framsetningu leikskólagjalda
    d) Tillaga borgarfulltrúa Miðflokksins um endurnýjun á rekstrar- og þjónustusamningi við íþróttafélagið Aþenu
    e) Tillaga borgarfulltrúa Vinstrisins um eflingu skólahljómsveita. MSS26060088

  2. Lögð fram tillaga að nýrri samþykkt notendaráðs fatlaðs fólks og öldungaráðs Reykjavíkurborgar ásamt bréfi skrifstofu borgarstjórnar, dags. 12. október 2026, þar sem teknar eru saman athugasemdir ÖBÍ réttindasamtaka, Þroskahjálpar, Geðhjálpar og NPA miðstöðvarinnar um tillöguna, ásamt fylgiskjölum.

    Lögð fram svohljóðandi breytingartillaga fulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstrisins og áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Lagt er til að eftirfarandi í 5. gr.: „Notendaráð fatlaðs fólks: ÖBÍ réttindasamtök, Þroskahjálp og Geðhjálp tilnefna hvert sinn fulltrúa og einn til vara og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins tilnefnir einn fulltrúa og einn til vara.“ verði svohljóðandi: „Notendaráð fatlaðs fólks: ÖBÍ réttindasamtök, Þroskahjálp, NPA miðstöðin og Geðhjálp tilnefna hvert sinn fulltrúa og einn til vara og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins tilnefnir einn fulltrúa og einn til vara.“

    Greinargerð fylgir breytingartillögunni.
    Breytingartillagan er felld með þremur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn tveimur atkvæðum Samfylkingarinnar og Vinstrisins.
    Samþykkt að vísa samþykktinni til borgarstjórnar með fjórum atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og Samfylkingarinnar gegn einu atkvæði fulltrúa Vinstrisins. MSS26080081

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihluti DCB samþykkir hér samþykktir fyrir notendaráð fatlaðs fólks og öldungaráðs í samræmi við 2. mgr. 42. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga þar sem kveðið er á um að í ráðinu skuli sitja þrír fulltrúar tilnefndir af hagsmunasamtökum fatlaðs fólks. Lagt er til að landssamtökin ÖBÍ, Þroskahjálp og Geðhjálp verði fulltrúar fatlaðs fólks. Athugasemdir frá NPA miðstöðinni eru meðteknar og í störfum ráðsins verður litið til þess að fulltrúar NPA miðstöðvarinnar verði kallaðir til þegar tilefni er til.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins ásamt áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sósíalistaflokks Íslands, Vinstrisins og Samfylkingarinnar harma að breytingartillagan sem tryggði NPA miðstöðinni fasta fundarsetu hafi verið felld. NPA miðstöðin var með fasta setu undir fyrirkomulagi mannréttindaráðs og lögðu þau sannarlega sitt af mörkunum þar bæði í málefnum sem varða NPA en líka öðrum hagsmunamálum fatlaðs fólks s.s. umfjöllun um aðgengismál, borgarumhverfi og samgöngur, skólamál og almenna stefnumótun í málefnum fatlaðs fólks eins og fram kemur í ítarlegri umsögn NPA miðstöðvarinnar. Miðstöðin er mikilvægt samvinnufélag fatlaðs fólks á Íslandi og hefur ríka innsýn í málaflokk fatlaðs fólks og hugmyndafræðina um sjálfstætt líf. Mikilvægt er þegar ráðið starfar undir formerkjum notendaráðs fatlaðs fólks að notendur þjónustunnar hafi þar raunverulega rödd.
     

    Fylgigögn

  3. Lagt fram að nýju bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 20. ágúst 2026, varðandi tillögu áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um stofnun öldunga- og notendaráðs fatlaðs fólks til forsætisnefndar, sbr. 8. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 4. september.
    Tillögunni er vísað frá með þremur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar og Vinstrisins. MSS26070005

    Fulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Tillagan var lögð fram í júlí og snerist um að kalla fram fleiri sjónarmið með því að setja málið í samráðsgátt. Með því hefði verið hægt að kalla fram fleiri raddir í tengslum við uppsetningu þessa ráðs.
     

    Fylgigögn

  4. Lögð fram tillaga að nýrri samþykkt skóla- og frístundaráðs ásamt bréfi skrifstofu borgarstjórnar, dags. 14. október 2026, þar sem teknar eru saman athugasemdir umsagnaraðila um tillöguna, ásamt fylgiskjölum.
    Lögð fram að nýju breytingartillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins við samþykktina, sbr. 5. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 22. september 2026.
    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins afturkalla breytingartillögu sína.
    Lögð fram að nýju breytingartillaga áheyrnarfulltrúa Miðflokksins við samþykktina, sbr. 5. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 22. september.
    Breytingartillagan er samþykkt með þremur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins. 
    Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
    Samþykktinni er vísað svo breyttri til borgarstjórnar.
    Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26080081

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn samþykkir breytingartillögu frá áheyrnarfulltrúa Miðflokksins þess efnis að fulltrúi Samtaka sjálfstæðra skóla fái einnig rétt til setu á fundum skóla- og frístundaráðs með málfrelsi og tillögurétt. Nú eru sex sjálfstætt starfandi grunnskólar sem eru með þjónustusamning við Reykjavíkurborg. Meirihlutanum finnst eðlilegt að fulltrúi Samtaka sjálfstæðra skóla taki þátt í fundum skóla- og frístundaráðs til jafns við fulltrúa hinna skólanna.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúi Miðflokksins þakkar fyrir góðar undirtektir við breytingartillögu hans að samþykktum leikskóla- og daggæsluráðs og skóla- og frístundaráðs. Sjálfstætt starfandi leik- og grunnskólar þjónusta um tíunda hluta þeirra barna sem sækja leik- og grunnskóla í Reykjavík. Ákvarðanir ráðanna hafa áhrif á starfsemi þessara skóla og því er eðlilegt að fulltrúar þeirra eigi sæti við borðið.

    Fulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Jákvætt er að meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í forsætisnefnd hafi dregið til baka tillögu um að fækka áheyrnarfulltrúum í skóla- og frístundaráði. Ljóst er að meirihlutinn hefði þurft að ræða mun betur saman í aðdraganda þessa máls þar sem meirihlutafulltrúar í skóla- og frístundaráði voru ósammála meirihlutafulltrúum í forsætisnefnd. Fulltrúi Vinstrisins telur þar að auki ekki þörf á því á þessu stigi að fulltrúi Samtaka sjálfstæðra skóla eigi seturétt á fundum skóla- og frístundaráðs. Þess má geta að fulltrúar starfsfólks skólanna eiga aðkomu að ráðinu.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun

    Gleðilegt er að meirihlutinn hefur fallið frá eigin tillögu að fjarlægja fasta setu áheyrnarfulltrúa stjórnenda frístundaheimila og félagsmiðstöðva ásamt áheyrnarfulltrúa ungmennaráðs. Þessi tillaga og málsmeðferð hennar endurspeglar vinnubrögð meirihlutans þar sem vaðið er af stað í breytingar án þess að raunverulega kryfja hverjar afleiðingarnar yrðu eða hve mikil hagræðing felst í breytingum. Sjálfstætt starfandi grunnskólar eru 15% grunnskóla í Reykjavík þar sem hver skóli hefur eigin hugmyndafræði, mismunandi áherslur í skólastarfi og mismunandi gjaldtöku fyrir skólavist. Ráðið fer jafnframt með eftirlit með sjálfstætt starfandi grunnskólum, gerir þjónustusamninga og leggur fram tillögur um fjárframlög til þeirra. Ekki þykir því eðlilegt að veita hagsmunasamtökum þeirra rekstraraðila áheyrn á fundum Reykjavíkurborgar vegna mögulegra hagsmunaárekstra. Jafnframt þykir ekki ábyrgt að veita hagsmunasamtökunum aðgang að viðkvæmum upplýsingum Reykjavíkurborgar. Alltaf stendur til boða að bjóða áheyrn í ákveðnum liðum á fundum og væri eðlilegra að bjóða fulltrúa sjálfstætt starfandi skóla til samráðs þegar á við en ekki fasta fundarsetu.
     

    Fylgigögn

  5. Lögð fram tillaga að nýrri samþykkt leikskóla- og daggæsluráðs ásamt bréfi skrifstofu borgarstjórnar, dags. 14. október 2026, þar sem teknar eru saman athugasemdir umsagnaraðila um tillögu að samþykkt leikskóla- og daggæsluráðs, ásamt fylgiskjölum.
    Lögð fram að nýju breytingartillaga áheyrnarfulltrúa Miðflokksins vegna nýrrar samþykktar leikskóla- og daggæsluráðs, sbr. 2. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 22. september.
    Samþykkt. 
    Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
    Samþykktinni er vísað svo breyttri til borgarstjórnar.
    Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26080081

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn samþykkir breytingartillögu frá áheyrnarfulltrúa Miðflokksins þess efnis að fulltrúi Samtaka sjálfstæðra skóla fái einnig rétt til setu á fundum leikskóla- og daggæsluráðs með málfrelsi og tillögurétt, rétt eins og fulltrúar leikskólastjóra, starfsfólks leikskóla og foreldra í leikskóla. Nú eru nær tuttugu sjálfstætt starfandi leikskólar sem eru með þjónustusamning við Reykjavíkurborg og sótt er um pláss öllum leikskólum, bæði borgarreknum og sjálfstætt starfandi í gegnum Völu. Meirihlutanum finnst eðlilegt að fulltrúi Samtaka sjálfstæðra skóla taki þátt í fundum leikskóla- og daggæsluráðs til jafns við fulltrúa hinna skólanna.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Sjálfstætt starfandi leikskólar eru fimmtungur leikskóla í Reykjavík þar sem hver skóli hefur eigin hugmyndafræði, mismunandi áherslur í skólastarfi og mismunandi gjaldtöku fyrir skólavist. Ráðið fer jafnframt með eftirlit með sjálfstætt starfandi leikskólum, gerir þjónustusamninga og leggur fram tillögur um fjárframlög til þeirra. Ekki þykir því eðlilegt að veita hagsmunasamtökum þeirra rekstraraðila áheyrn á fundum Reykjavíkurborgar vegna mögulegra hagsmunaárekstra. Jafnframt þykir ekki ábyrgt að veita hagsmunasamtökunum aðgang að viðkvæmum upplýsingum Reykjavíkurborgar. Alltaf stendur til boða að bjóða áheyrn í ákveðnum liðum á fundum og væri eðlilegra að bjóða fulltrúa sjálfstætt starfandi skóla til samráðs þegar á við en ekki fasta fundarsetu.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúi Miðflokksins þakkar fyrir góðar undirtektir við breytingartillögu hans að samþykktum leikskóla- og daggæsluráðs og skóla- og frístundaráðs. Sjálfstætt starfandi leik- og grunnskólar þjónusta um tíunda hluta þeirra barna sem sækja leik- og grunnskóla í Reykjavík. Ákvarðanir ráðanna hafa áhrif á starfsemi þessara skóla og því er eðlilegt að fulltrúar þeirra eigi sæti við borðið.
     

    Fylgigögn

  6. Lögð fram tillaga að nýrri samþykkt menningarráðs ásamt bréfi skrifstofu borgarstjórnar, dags. 12. október 2026, þar sem lagt er til að forsætisnefnd samþykki að vísa samþykktinni til afgreiðslu borgarstjórnar, ásamt fylgiskjölum.
    Vísað til borgarstjórnar MSS26080081
     

    Fylgigögn

  7. Lögð fram tillaga að nýrri samþykkt íþrótta- og útilífsráðs ásamt bréfi skrifstofu borgarstjórnar, dags. 12. október 2026, þar sem lagt er til að forsætisnefnd samþykki að vísa samþykktinni til afgreiðslu borgarstjórnar, ásamt fylgiskjölum.
    Vísað til borgarstjórnar. MSS26080081

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 13. október 2026, þar sem lagt er til að forsætisnefnd samþykki að vísa tillögu að breytingu á 4. mgr. 8. gr. samþykktar velferðarráðs til afgreiðslu borgarstjórnar.
    Vísað til borgarstjórnar. MSS26080081

    Fylgigögn

  9. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 13. október 2026, þar sem lagt er til að forsætisnefnd samþykki að vísa tillögu að breytingu á 63., 64., og 35. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar til afgreiðslu borgarstjórnar ásamt fylgiskjölum.
    Vísað til fyrri umræðu í borgarstjórn. MSS26060008

    Fylgigögn

  10. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 13. október 2026, þar sem lögð er til breyting á 13. gr. samþykktar um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg. 
    Samþykkt. MSS26080082

    Fylgigögn

  11. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um endurskoðun siðareglna kjörinna fulltrúa, sbr. 9. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 4. september 2026.
    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands afturkallar tillögu sína. MSS26060081

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands dregur tillöguna til baka að svo stöddu í ljósi þess að breytingar munu fylgja nýjum sveitarstjórnarlögum og er því talið eðlilegt að bíða með endurskoðun í það minnsta þangað til ný lög eru sett.
     

    Fylgigögn

  12. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Vinstrisins:

    Hefur orðið kostnaðarauki á þessu kjörtímabili vegna breytinga á kjörgengi í ráð borgarinnar? Ef svo er hver er sá kostnaðarauki? MSS26100070

Fundi slitið kl. 11:25

Björg Magnúsdóttir Bjarni Guðjónsson

Einar Þorsteinsson Sanna Magdalena Mörtudottir

Skúli Helgason

PDF útgáfa fundargerðar
Forsætisnefnd 16.10.2026 - Prentvæn útgáfa