Forsætisnefnd - Forsætisnefnd föstudaginn 13. febrúar 2026 nr. 371

Forsætisnefnd - Forsætisnefnd föstudaginn 13. febrúar 2026 nr. 371

Forsætisnefnd

Ár 2026, föstudaginn 13. febrúar, var haldinn 371. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10:05. Viðstaddar voru Sanna Magdalena Mörtudóttir, Guðný Maja Riba, Helga Þórðardóttir og Marta Guðjónsdóttir. Eftirtalinn áheyrnarfulltrúi tók sæti á fundinum: Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir. Eftirtaldir fulltrúar og áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Líf Magneudóttir og Magnea Gná Jóhannsdóttir. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn Dís Sigurgeirsdóttir og Ólöf Magnúsdóttir sem ritaði fundargerð.
 

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 17. febrúar 2026. MSS25010046

    Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:

    a)    Tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna um nýtingu frístundastyrks fyrir stutt námskeið
    b)    Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um endurskoðun umferðarskipulags við Höfðabakka og Bæjarháls
    c)    Tillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokksins um fjölgun og eflingu ungmennahúsa í borginni
    d)    Umræða um þátttöku barna með fötlun í íþróttastarfi í Reykjavík (að beiðni borgarfulltrúa Viðreisnar)
    e)    Umræða um stöðu húsnæðismála skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins)
    f)    Umræða um íbúalýðræði í Reykjavík (að beiðni borgarfulltrúa Framsóknarflokksins)
    g)    Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um hverfislögreglustöð í Breiðholti
    h)    Umræða um tillögu að nýju deiliskipulagi við Holtsgötu 10-12 og Brekkustíg 16 (að beiðni borgarfulltrúa Framsóknarflokksins)
    j)    Umræða um öryggismál á skiptistöðinni í Mjódd (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins)

    -     Kl. 10:07 tekur Alexandra Briem sæti á fundinum.

  2. Fram fer umræða um verklag við boðun funda borgarstjórnar. MSS26010032

  3. Fram fer umræða um endurskoðun reglna um notkun fána við stjórnsýsluhús Reykjavíkurborgar. MSS24080092

    Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Í ljósi þess að sveitarfélög fara ekki með utanríkismál er það afstaða fulltrúa Sjálfstæðisflokksins að erlenda þjóðfána skuli ekki draga að húni við Ráðhús Reykjavíkur nema við opinberar heimsóknir. Þá er minnt á tillögu Sjálfstæðisflokksins frá 5. júní 2025 um að íslenski þjóðfáninn verði dreginn að húni við Ráðhúsið alla daga ársins, en sú tillaga hefur ekki enn fengið afgreiðslu. Umhugsunarvert er hversu hratt má afgreiða tillögur um flöggun erlendra þjóðfána, en hve langan tíma tekur að rýna tillögu sem snýr að okkar eigin þjóðfána.
     

Fundi slitið kl. 11:07

Sanna Magdalena Mörtudottir Guðný Maja Riba

Helga Þórðardóttir Magnea Gná Jóhannsdóttir

Marta Guðjónsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Forsætisnefnd 13.02.2026 - Prentvæn útgáfa