Fjölmenningarráð - Fundur nr. 52

Fjölmenningarráð

Ár 2022, mánudaginn 14. mars, var haldinn 52. fundur fjölmenningarráðs Reykjavíkurborgar.

Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 15.06. Fundinn sat Sabine Leskopf.  Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundabúnaði með vísan í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Christina Anna Milcher og Renata Emilsson Peskova. Einnig sat fundinn Elísabet Pétursdóttir.

Joanna Marcinkowska ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á málefnum Úkraínu. MSS22030114

    Ragnar Snær tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 15.16 tekur Hildur Björnsdóttir sæti á fundinum.

    Fylgigögn

  2. Lögð fram umsögn fjölmenningarráðs dags. 11. mars 2022, um drög að endurskoðaðri þjónustustefnu Reykjavíkurborgar og drög að aðgerðaráætlun. ÞON21070032
    Samþykkt.

    Fylgigögn

  3. Fram fer umræða um drög á skýrslu fjölmenningarráðs um starf ráðsins 2018-2022. MSS22020182 

  4. Kynning á verkefninu Nordic Safe Cities. MSS21110025 
    Frestað. 

Fundi slitið klukkan 16:23

Sabine Leskopf Hildur Björnsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
52._fundargerd_fjolmenningarrads_fra_14._mars_2022.pdf