Fjölmenningarráð - Fundur nr. 41

Fjölmenningarráð

Ár 2021, mánudaginn 8. mars, var haldinn 41. fundur fjölmenningaráðs Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi og hófst kl. 15:02. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundabúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 230/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Sabine Leskopf, Andie Sophia Fontaine, og Renata Emilsson Peskova. Einnig sat fundinn Elísabet Pétursdóttir.

Achola Otieno ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 1. febrúar 2021, um heimildir til frávika frá skilyrðum sveitarstjórnarlaga vegna neyðarástands í sveitarfélagi m.a. varðandi notkun fjarfundabúnaðar á fundum nefnda og ráða, ásamt fylgiskjölum. R18060129 

    -    Kl. 15:06 tekur Tui Hirv sæti á fundinum.

    Fylgigögn

  2. Lögð fram umsögn Fjölmenningarráðs um Stefnu um framtíðarskipan tónlistarnáms í Reykjavík til 2030, dags. 22. febrúar 2021. R21010263

    Fylgigögn

  3. Fram fer kynning á verkefninu PaCE Populism and Civic Engagement hjá Þjónustu- og nýsköpunarsviði. R20060045 

    -    Kl. 15:23 tekur Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði.

    Roxana Elena Cziker tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  4. Bréf borgarstjóra, dags. 21. febrúar 2021, ásamt lokaskýrslu starfshóps um börn innflytjenda í Reykjavík. R1900031
    Frestað.

  5. Fram fer kynning á Fjölmenningardegi/Fjölmenningarþingi Reykjavíkurborgar – Næstu skref. R19020227

    Fjölmenningarráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fjölmenningarráð þakkar fyrir kynningu á fjölmenningardegi og fjölmenningarþingi Reykjavíkurborgar. Í takt við fjölmenningaryfirlýsingu Reykjavíkurborgar sem samþykkt var einróma í borgarstjórn þann 17. september 2020, er lögð rík áhersla á að fjölbreytileiki og virk þátttaka á öllum sviðum samfélagsins eru undirstaða jákvæðrar þróunar. Því er ljóst að þessir viðburðir munu verða haldnir í breyttri mynd til framtíðar. Fjölmenningarráð í samstarfi við mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu mun skipuleggja viðburð haustið 2021, í samstarfi við hagsmunaaðila ríkis og borgar sem sinna þjónustu og upplýsingagjöf til innflytjenda sem og við grasrótarsamtök á þeirra forsendum. Kemur þá til greina að fjalla á árinu 2021 sérstaklega um upplýsingagjöf til innflytjenda og hvernig er best hægt að tryggja aðgengi að henni. Um er að ræða viðburð sem undirstrikar að borgarsamfélagið byggir á inngildingu (e. inclusion) allra, frekar en einhliða aðlögun.

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 16:25

Sabine Leskopf Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
fjolmenningarrad_0803.pdf