Ferlinefnd fatlaðs fólks
Ár 2017, fimmtudaginn 24. maí, var haldinn 35. fundur ferlinefndar fatlaðs fólks. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 11.35. Fundinn sátu: Magnús Már Guðmundsson, Bryndís Snæbjörnsdóttir, Ingólfur Már Magnússon og Grétar Pétur Geirsson. Rósa María Hjörvar tók sæti á fundinum sem varamaður. Fundinn sat einnig Tómas Ingi Adolfsson sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
1. Fram fer kynning á uppsetningu djúpgáma við Kirkjusand.
Ferlinefnd leggur fram svohljóðandi bókun:
Ferlinefnd þakkar Hermanni Georg Gunnlaugssyni, landslagsarkitekt, fyrir greinargóða kynningu á uppsetningu djúpgáma við Kirkjusand og á fleiri stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Ferlinefnd leggur áherslu á að þar sem djúpgámum verður komið fyrir að hugað verði í hönnun og útfærslu að aðgengi allra að þeim. Að auki leggur ferlinefnd áherslu á að uppröðun djúpgámanna verði stöðluð út frá aðgengi fyrir blinda og sjónkerta.
Hermann Georg Gunnlaugsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
2. Fram fer umræða um stefnumótun í aðgengismálum.
Fundi slitið kl. 12.55
Magnús Már Guðmundsson
Bryndís Snæbjörnsdóttir Ingólfur Már Magnússon
Grétar Pétur Geirsson Rósa María Hjörvar