Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 49

Endurskoðunarnefnd

Endurskoðunarnefnd

Árið 2013, mánudaginn 26. ágúst, var haldinn 49. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Tjarnargötu 12, 3. hæð og hófst kl. 9:00. Viðstödd voru: Ólafur B. Kristinsson og Sigrún Guðmundsdóttir. Fundarritari var Hallur Símonarson.

Þetta gerðist:

1. Árshlutareikningur fyrstu 6 mánaða. Undir þessum lið mættu fjármálastjóri, borgarbókari og sérfræðingur uppgjörsdeildar fjármálaskrifstofu og fóru yfir niðurstöður og helstu álitaefni. Ákveðið að endurskoðunarnefnd veiti borgarráði umsögn um leið og árshlutareikningur er lagður fram.

2. Útboð endurskoðunarþjónustu. Farið yfir tilboð bjóðenda í endurskoðunarþjónustu fyrir samstæðu Reykjavíkurborgar. Rætt um ferli við frágang málsins og kynningu fyrir B hluta fyrirtækjum. Frestað.

3. Ferli við gerð fjárhagsáætlunar. Unnið verði að því að móta aðkomu endurskoðunarnefndar að eftirliti með framkvæmd fjárhagsáætlunar.

4. Verkefni framundan. Áformað að vinna að verkáætlun fyrir komandi haust og vetur og vinna við sjálfsmat. Jafnframt þarf að fylgja eftir skýrslu Deloitte um uppgjörsferlið.

5. Samskiptamál. Unnið er að formfestingu samskipta endurskoðunarnefnda Reykjavíkurborgar og Orkuveitu Reykjavíkur.

Fundi slitið kl. 11.20

Ólafur B. Kristinsson
Sigrún Guðmundsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Endurskoðunarn-2608.pdf